Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Árni Jóhannsson skrifar 12. mars 2026 21:49 vísir/Anton Álftanes er við það að missa af sæti en ÍR er búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni eftir 89-93 sigur í leik liðanna í 19. umferð Bónus deildar karla. Álftanes þurfti nauðsynlega á sigri að halda í þessum leik en ÍR-ingar sóttu sterkan sigur á útivelli. Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi en þegar Álftanes fékk tækifæri til að jafna undir lokin tókst liðinu ekki að koma boltanum í leik úr innkasti. Eftir sigur ÍR eru Breiðhyltingar búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Álftanes á enn örlitla og veika von, en þyrftu þá að vinna bæði Tindastól og Stjörnuna í síðustu tveimur leikjum og treysta á að Njarðvík tapi sínum leikjum. Gestirnir úr Breiðholtinu byrjuðu betur í kvöld og hittu t.a.m. úr fyrstu fjórum þristunum sem þeir reyndu en Álftnesingar voru klaufar með boltann og virtust ekki tilbúnir í verkefnið. Það var að sjálfsögðu risastórt en nú fer hver að verða síðastur að næla sér í sigra til að festa sætin sín. ÍR var yfir 5-13 og 10-16 áður en heimamenn vöknuðu og náðu að jafna metin í 20-20. Þá kom kuldakafli aftur en ÍR skoraði níu stig í röð og 11 á móti þremur til að koma sér í 23-31 forystu að loknum fyrsta leikhluta. Heimamenn svöruðu heldur betur. Læstu vörninni, nöguðu niður forskotið og komust svo yfir þegar fjórar mínútur tæpar voru eftir af fyrri hálfleik. Staðan var þá 41-40 en saga þessa leiks getur verið að Álftanes hafði ekki alveg það sem þurfti til að ná yfir höndinni því alltaf þegar þeir komust yfir eða komust nálægt ÍR þá svöruðu ÍR-ingar með öflugum kafla. Það gerðist aftur en forskot ÍR varð ekki meira en fimm stig áður en heimamenn náðu aftur vopnum sínum. Staðan var 52-54 þegar liðin fóru til búningsherbergja. Það var eins og liðin hafi fengið þær skipanir í hálfleik að varnarleikur væri ekki nauðsynlegur í þriðja leikhlutanum. Liðin skiptust á körfum og forskotinu vel framan af þriðja leikhluta og mátti ekki miklu muna á þeim. Spennan var rafmögnuð en David Okeke fór á kostum í þriðja leikhluta á báðum endum vallarins. Enn náðu heimamenn ekki yfirhöndinni en ÍR átti góðan kafla í lok þriðja leikhluta og komst í 72-79 forskot sem var það mesta í seinni hálfleiknum. Álftanes klóraði í bakkann og fyrir lokaátökin var staðan 76-79. Vandamál heimamanna var oft að þeir gripu ekki tækifærin þegar þeir náðu að stoppa sóknarlotur gestanna. Síðasti leihlutinn var svakalega spennandi. Álftanes var hænufeti framar og virkuðu ÍR-ingar þreyttir en t.d. þá spiluðu allir byrjunarliðsmenn gestanna 34 mín. eða meira. Enn náðu heimamenn ekki að slíta sig frá gestunum og ÍR því alltaf í séns þrátt fyrir að vera 2-3 stigum undir lengi vel í fjórða leikhlutanum. Þegar staðan var 88-86 fyrir Álftanesi þegar rúmlega tvær mínútur voru eftir þá steig fyrirliði ÍR upp og negldi niður þrist til að koma ÍR yfir. Það fór um heimamenn en ÍR náði síðan stoppi og setti aðra körfu og var komið í þriggja stiga foryst þegar skammt var eftir. Hvorugt liðið náði að skora fyrir utan David Okeke sem setti niður eitt víti og minnkaði muninn í 89-91 þegar 1:39 voru eftir. Allir vöðvar í salnum spenntust og liðunum gekk illa í sóknum sínum það sem eftir lifði. Þegar 15 sekúndur voru eftir þá var brotið á heimamönnum sem voru ekki komnir í skotrétt þannig að þeir áttu boltann en þurftu að koma honum inn á úr innkasti. Eftir leikhlé þá fékk Rati það hlutverk að kasta boltanum inn á vallarhelming ÍR en varnarleikur gestanna var góður og Rati fékk dæmdar á sig fimm sekúndur. Það gerði það að verkum að í stöðunni 89-91 þá glötuðu heimamenn tækifærinu á að jafna eða komast yfir og þurftu að treysta á það að ÍR kæmi boltanum ekki inn, sem þeir gerðu og þurftu þá að brjóta á Falko sem fór á vítalínuna. Hann setti niður tvö víti og kom leiknum í tveggja körfu leik sem ÍR sigldi síðan heim. ÍR mun taka þátt í úrslitakeppninni en Álftanes þarf kraftaverk og mögulega nokkur til að bóka miða á ballið. Atvik leiksins Þegar 15 sekúndur eru eftir af leiknum og ÍR leiðir með tveimur stigum, 89-91. Rati nær ekki að taka innkast og kastar leiknum frá heimamönnum. Stjörnur og skúrkar Eins leiðinlegt og það er þá þarf Rati að vera skúrkurinn í þetta skipti. Hann var búinn að eiga flottan leik en þetta var risastórt atriði. David Okeke var stigahæstur heimamanna með 23 stig en Justin James hefði þurft að gera meira að mínu mati en hann skilaði 18 stigum á 40 mínútum og hitti einu af tíu þriggja stiga skotum. Hjá ÍR voru margir sem lögðu í púkkið. Það er mikið af meiðslum þannig að það mæddi mikið á byrjunarliðinu en allir skoruðu þeir 14 stig eða meira. Dimtrios Klonaras var helsti kvalari fyrrum vinnuveitenda sinn en hann skoraði 23 stig. Hákon Örn Hjálmarsson skoraði 14 og átti mögulega stærstu körfuna þegar hann kom sínum mönnum yfir undir lokin. Umgjörð og stemmning Umgjörðin á Álftanesi til fyrirmyndar. Stemmningin einnig og báðar fylkingar óþreytandi í að hvetja sína menn áfram. Dómararnir Ef maður tekur ekki eftir tríóinu og leikurinn klárast á skikkanlegum tíma þá ætla ég ekki að kvarta. Þeir stóðu sig vel í dag. Bónus-deild karla UMF Álftanes ÍR