Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Árni Jóhannsson skrifar 12. mars 2026 18:32 vísir/Anton Álftanes er við það að missa af sæti en ÍR er búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni eftir 89-93 sigur í leik liðanna í 19. umferð Bónus deildar karla. Álftanes þurfti nauðsynlega á sigri að halda í þessum leik en ÍR-ingar sóttu sterkan sigur á útivelli. Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi en þegar Álftanes fékk tækifæri til að jafna undir lokin tókst liðinu ekki að koma boltanum í leik úr innkasti. Eftir sigur ÍR eru Breiðhyltingar búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Álftanes á enn örlitla og veika von, en þyrftu þá að vinna bæði Tindastól og Stjörnuna í síðustu tveimur leikjum og treysta á að Njarðvík tapi sínum leikjum. Bónus-deild karla UMF Álftanes ÍR