„Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Árni Sæberg skrifar 11. mars 2026 15:56 Einar Oddur Sigurðsson. lögmaður. Vísir/Vilhelm Einar Oddur Sigurðsson, verjandi annars sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða, segir ómerkingardóm Hæstaréttar hafa verið umbjóðanda sínum vonbrigði. „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími eftir efnislegri niðurstöðu sem báðir sakborningar og verjendur bjuggust við að kæmi í dag og þessu sakarefni yrði þá lokið í eitt skipti fyrir öll.“
Hæstiréttur ómerkti í dag sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða og vísaði málinu aftur til Landsréttar til meðferðar. Túlkun Landsréttar röng Dómur þess efnis var kveðinn upp klukkan 14 og hann má lesa hér. Í stuttu máli taldi Hæstiréttur að ágallar hefðu verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum almennra hegningarlaga svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þar sem Hæstiréttur gæti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar hafi verið óhjákvæmilegt vegna framangreindra annmarka að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Kom á óvart Einar Oddur, sem var skipaður verjandi Ísidórs í héraði og Landsrétti, ræddi málið við Vísi strax að lokinni dómsuppsögu. Ásgeir Þór Árnason flutti málið fyrir Hæstarétti. „Þetta er óvænt niðurstaða, verð ég að segja. Þessi ómerkingarkrafa var í rauninni varakrafa frá ákæruvaldinu sem fékk nú ekki mikla umfjöllun hérna í málflutning í Hæstarétti. En þetta eru töluvert miklar athugasemdir sem gerðar eru við dóm Landsréttar og ég verð að segja að þetta kemur svona að einhverju leyti á óvart.“ Verjendur renna yfir dóminn.Vísir/Vilhelm Fundið hafi verið að aðferðafræði við sönnunarmat og öðru slíku. Framburðir vitna sem hefði átt að fara nánar ofan í og fleira sem hafi legið til grundvallar í Landsrétti. Hæstiréttur hafi talið að það hefði þurft að fara nánar ofan í þetta og greina þau atriði sem Landsréttur byggði niðurstöðu sína á. Vel á fjórða ár Þá segir Einar Oddur að um þrjú og hálft ár séu frá því að Ísidór var handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald vegna málsins. „Ég vil leyfa mér að segja að hann verður fyrir vonbrigðum með þessa niðurstöðu. Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími eftir efnislegri niðurstöðu sem báðir sakborningar og verjendur bjuggust við að kæmi í dag og þessu sakarefni yrði þá lokið í eitt skipti fyrir öll.“
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira