Segir Kúbu brátt munu falla Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. mars 2026 23:31 Forsetinn fór um víðan völl í viðtali við CNN. EPA/AARON SCHWARTZ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla. „
Íran er ekki sama land og það var fyrir viku síðan. Fyrir viku voru þeir öflugir en núna hafa þeir í raun verið geldir,“ segir forsetinn í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNN. Haft er eftir honum að það ætti að reynast tiltölulega auðvelt að skipta um leiðtoga í landinu. „Það mun ganga auðveldlega. Þetta mun ganga eins og þetta gekk í Venesúela. Við höfum stórkostlegan leiðtoga þar. Hún er að standa sig frábærlega. Og þetta mun ganga eins og í Venesúela,“ hefur CNN eftir forsetanum. Þar vísaði hann til aðgerða Bandaríkjahers í Venesúela þar sem Nicolas Maduro forseti landsins var handsamaður í skjóli nætur og fluttur til Bandaríkjanna í fangelsi. Þá vísaði hann til Delcy Rodriguez sem er nú starfandi forseti Venesúela. Þá hefur CNN eftir forsetanum að hann sé opinn fyrir því að næsti leiðtogi Íran verði trúarleiðtogi. „Jú, ég gæti verið það, já, ég meina, það fer eftir því hver manneskjan er. Ég hef ekkert á móti trúarleiðtogum. Ég á í samskiptum við marga trúarleiðtoga og þeir eru frábærir,“ segir hann. Hann telji það ekki úrslitaatriði hvort Íran verði lýðræðisríki eða ekki. Meginatriði sé að næsti leiðtogi sé sanngjarn og réttlátur. „Sem standi sig vel. Komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael og komi vel fram við hin löndin í Miðausturlöndum – þau eru öll samstarfsaðilar okkar.“ Kúba vilji við samningaborðið Þá hefur CNN eftir forsetanum að yfirvöld á Kúbu „muni brátt falla.“ Virðist forsetinn hafa sagt það í framhjáhlaupi. „Kúba mun falla innan skamms, svona til gamans getið, en Kúba mun líka falla. Þá langar svo mikið að semja,“ sagði hann við fréttamann CNN og hreykti sér af hernaðarárangri Bandaríkjanna á síðara kjörtímabili sínu. „Þá langar að semja og því ætla ég að setja Marco (Rubio) í málið og við sjáum hvernig það gengur. Við einbeitum okkur að þessu núna. Við höfum nægan tíma, en Kúba er tilbúin – eftir fimmtíu ár,“ bætti hann við og útskýrði að Íran væri í forgangi um þessar mundir. Núverandi stjórnvöld á Kúbu hafa haldið þar í stjórnartaumana í 67 ár eða frá því að þau tóku völd í byltingu 1959 og hafa þau allar götur síðan verið þyrnir í augum Bandaríkjamanna. Enda var kalda stríðið í algleymingi og kommúnistar með Fidel Castro í broddi fylkingar þeir sem hrifsuðu þar völd. Fidel Castro stýrði Kúbu til 2008 þegar bróðir hans Raúl Castro tók við keflinu. Sá stýrði í tíu ár en í dag er Kúbu stjórnað af Miguel Díaz-Canel sem fer með forsetaembættið og æðstu völd í kúbverska kommúnistaflokknum.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Kúba Donald Trump Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira