Upp­gjörið: Ís­land - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Íslensku stelpurnar fögnuðu vel og innilega í leikslok.
Íslensku stelpurnar fögnuðu vel og innilega í leikslok. Vísir/Hulda Margrét

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann gríðarlega sterkan eins marks sigur er liðið tók á móti Svartfellingum í undankeppni EM í handbolta í kvöld, 28-27.

Íslensku stelpurnar lentu í smá brasi í upphafi leiks og skoruðu ekki úr opnum leik fyrr en að tæpar sex mínútur voru liðnar af leiknum. Þá hafði Sandra Erlingsdóttir skorað eina mark Íslands af vítapunktinum, en Armelle Attingre var í miklu stuði í svartfellska markinu.

Íslenska liðið lét það þó ekki á sig fá og komst yfir í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 5-4 eftir tæplega tíu mínútna leik.

Vísir/Hulda Margrét

Liðin skiptust þó á að skora næstu mínútur þar til Ísland náði tveggja marka forskoti í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 10-8. Stuttu síðar tóku Svartfellingar leikhlé og náðu yfirhöndinni á ný.

Munurinn á liðunum varð þó aldrei meiri en eitt mark á lokamínútum fyrri hálfleiks og Sandra Erlingsdóttir sá til þess að staðan var jöfn, 13-13, þegar liðin gengu til búningsherbergja með marki af vítalínunni.

Ef einhverjir höfðu áhyggjur af því að íslenska liðið myndi mæta orkuminna til leiks í seinni hálfleik þá urðu þær áhyggjur fljótt að engu.

Vísir/Hulda Margrét

Íslensku stelpurnar héldu áfram af sama krafti og fyrir hlé og hægt og rólega mátti sjá svartfellska liðið þreytast á þessum gríðarlega hraða sem sóknarlína Íslands bauð upp á.

Elín Klara Þorkelsdóttir kom sér í hlutverk drifkrafts íslenska liðsins og aðrir leikmenn fylgdu henni af heilum hug.

Þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka náði íslenska liðið þriggja marka forskoti í fyrsta sinn í leiknum, en Svartfellingar hleyptu íslensku stelpunum þó aldrei of langt frá sér og minnkuðu muninn niður í eitt mark stuttu síðar.

Elín Klara kom íslenska liðinu svo í fjögurra marka forskot þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka og héldu þá flestir að björninn væri unninn. Svartfellingar áttu þó enn smá eftir á tankinum og minnkuðu muninn niður í eitt mark þegar sléttar tvær mínútur voru eftir.

Vísir/Hulda Margrét

Fyrir framan nánast fulla Ásvelli héldu íslensku stelpurnar þó haus og Sara Sif Helgadóttir, sem hafði komið inn í markið eftir að Hafdís Renötudóttir fékk höfuðhögg, varði víti á ögurstundu.

Svartfellingar náðu að minnka muninn aftur niður í eitt mark á lokasekúndunum, en þá var það orðið of seint, og Ísland fagnaði eins marks sigri, 28-27.

Með sigrinum fer Ísland upp að hlið Færeyjum og Portúgal í 2.-4. sæti riðils fjögur með tvö stig, en Færeyjar og Portúgal mætast síðar í kvöld. Svartfjallaland trónir hins vegar enn á toppnum með fjögur stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira