Lífið

Minnast Davíðs: Hug­rakkur, hnyttinn og stór í sniðum

Jakob Bjarnar og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Guðrún Hafsteinsdóttir, Illugi Jökulsson og Eyþór Arnalds eru á meðal þeirra sem minnast Davíðs.
Guðrún Hafsteinsdóttir, Illugi Jökulsson og Eyþór Arnalds eru á meðal þeirra sem minnast Davíðs. Vísir

Landsmenn vöknuðu flestir við þau tíðindi að einn áhrifamesti stjórnmálamaður sögunnar er fallinn frá. Sífellt fjölgar í hópi þeirra sem minnast Davíðs á samfélagsmiðlum og koma kveðjur úr öllum áttum; bæði þeirri hægri og vinstri en líka frá samfélagi samkynhneigðra.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er meðal þeirra sem minnast Davíðs. Hún segist hafa hitt hann nýlega og fundið fyrir hlýju hans. Tíðindin séu þung og sorgleg.

Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins.Vísir/vilhelm

„Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr í sýn, sterkur í sannfæringu og með hæfileika til að móta samfélagið með hugmyndum sínum og forystu. Davíð mótaði íslensk stjórnmál, efnahagslíf og þjóðmálaumræðu um áratuga skeið. Hann gegndi embætti forsætisráðherra á tíma sem margir telja mesta blómaskeið í lýðveldissögunni. Á þeim árum urðu miklar framfarir í íslensku samfélagi, efnahagslífið styrktist og trú fólks á framtíð landsins var sterk. Í þeirri vegferð var Davíð í lykilhlutverki,“ segir Guðrún í færslu á Facebook.

„Fyrir okkur sjálfstæðismenn var hann meira en stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi sem mótaði heila kynslóð. Hann hafði sterka trú á Íslandi, á frelsi einstaklingsins, á dugnað fólksins í landinu og á getu þjóðarinnar til að standa á eigin fótum. Sú trú einkenndi verk hans og málflutning alla tíð. Hvort sem menn voru honum sammála eða ekki fór enginn varhluta af áhrifum hans. Hann skildi eftir sig djúp spor í sögu þjóðarinnar.

Ég hitti Davíð nýverið og það verður mér minnisstætt hversu hlýlega hann tók á móti mér. Hann var jafn skarpur og jafn áhugasamur um stjórnmál heima og erlendis og alla tíð.“

„Leiddi þjóðina til farsældar“

Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, minnist Davíðs fyrir hugrekki í erfiðum málum.

Eyþór Arnalds kom að rekstri Morgunblaðsins um tíma sem stjórnarmaður og hluthafi í útgáfufélaginu Árvakri.Sröð 2/Egill

„Davíð Oddsson var merkasti stjórnmálamaður Ísland. Ferill hans var einstakur og merkur. Hann hafði djúpan skilning á hinu stóra sem og hinu smáa. Hann hafði hugrekki til að taka af skarið í erfiðum málum og leiddi þjóðina til farsældar.“

Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og rithöfundur stingur niður penna í tilefni dagsins.

„Fáir hafa verið áhrifameiri Íslendingar í minni tíð en hann. Pólitísk arfleifð hans verður gerð upp smátt og smátt en á þessari stundu votta ég einlæga samúð ástvinum hans og vinum. Hann var sannarlega stór í sniðum.“

Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu og Sjálfstæðismaður rifjar upp kynni sín af Davíð.

Hermann Nökkvi Gunnarsson.Sýn

„Ég hitti Davíð Oddsson í fyrsta sinn árið 2016 þegar Bogga frænka fékk mig með sér á framboðsfund hans, ég þá aðeins 13 ára gamall. Mér fannst hann strax hnyttinn en ekki síður var hann yfirburðamaður í að útskýra flókin mál á einfaldan og aðgengilegan hátt. Þótt ég hafi verið ungur man ég vel eftir ræðunni sem hann flutti á Park Inn-hótelinu í Keflavík. Það var eitthvað við nærveru hans og orðfæri sem sat eftir,“ segir Hermann Nökkvi.

Hann sjái engan stjórnmálamann sem komist með tærnar þar sem hann hafði hælana.

Hermann Nökkvi birtir mynd af forsíðu Morgunblaðsins í dag.

„Undanfarin ár, eftir að ég hóf störf á Morgunblaðinu, hef ég lesið meira eftir hann, ýmist leiðara og Reykjavíkurbréf í Morgunblaðinu eða gamlar ræður. Hann var með einstakan stíl og sína eigin nálgun á málin. Það verður aldrei neinn eins og hann. Það eru forréttindi að hafa fengið að starfa með svona ritstjóra en ekki síður er maður þakklátur fyrir að fá að alast upp á Íslandi í kjölfar þeirra miklu breytinga sem hann fór í á sinni stjórnartíð. Ísland er á þeim góða stað sem það er í dag ekki síst þökk sé því þrekvirki sem hann og aðrir unnu í stjórnartíð hans. Davíð er án vafa merkilegasti stjórnmálamaður Íslandssögunnar!“

Ólafur Thors, Hannes Hafstein og Davíð Oddsson

„Ég vil byrja á því að votta aðstandendum hans mínar innilegustu samúðarkveðjur,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún sagði hann einn áhrifamesta stjórnmálamann síðari tíma.

„Þegar maður lítur til baka hugsar maður um hann og Ólaf Thors og Hannes Hafstein,“ segir hún og að það séu fyrstu nöfnin sem komi til hugar. Hann hafi haft mikil áhrif, eins og Jón Baldvin Hannibalsson, á það hvernig íslenskt samfélag þróaðist og hafi fært íslenskt samfélag í nútímann.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra.Vísir/Lýður

„Hann breytti íslensku samfélagi að mínu mati þannig að það náðist almennileg viðspyrna,“ segir Þorgerður og að hann hafi verið litríkur karakter.

„Það var náttúrulega mjög lærdómsríkt að vinna og starfa í kringum hann. Hann er leiftrandi og skapandi, mikill listamaður líka,“ segir hún og að það megi sjá í textum hans.

„Sterkur karakter er genginn og það er margt hægt að læra frá hans tímum.“

Góður siður að segja eitthvað fallegt

Katrín Oddsdóttir lögmaður segir það góðan sið að segja eitthvað fallegt um fólk þegar það fellur frá.

Katrín Oddsdóttir er formaður Stjórnarskrárfélags Íslands.Vísir/Arnar Halldórsson

„Um Davíð Oddsson má segja það að hann stóð fallega með réttindabaráttu samkynhneigðra í upphafi hennar þegar slík afstaða var ekki sjálfsögð. Til dæmis skilst mér að hann hafi látið Samtökin 78 hafa Gula húsið í Lindargötu þegar hann var borgarstjóri og þar með þak yfir höfuðið. Sem forsætisráðherra skipaði Davíð nefnd til að kanna ítarlega réttarstöðu samkynhneigðs fólks og gera tillögur um úrbætur. Mér hefur alltaf þótt þetta fara furðu lágt í umræðum um þennan stóra karakter en hafi hann þökk fyrir og megi hann hvíla í friði.“

Davíð í Siggu og Viggu

Stefán Pálsson sagnfræðingur segir Davíð Oddsson einn fárra Íslendinga sem skaut upp kollinum í vinsælum erlendum myndasagnaflokki - og mögulega eini pólitíkusinn. Það var í bókunum um Sigga og Viggu eða Suske en Wiske, vinsælustu myndasögum Hollendinga á síðustu öld.

Í myndasögunni spyr ferðamaður á Íslandi Davíð: „Segið mér, góði maður, ætlið þér að bera farangurinn minn?“ Maðurinn í græna útskýrir að þarna sé á ferðinni Davíð Oddsson, borgarstjórinn í Reykjavík, sem býður ferðalanginn velkominn.

„Davíð hefur nú verið betur teiknaður en á þessari mynd, en hann birtist þarna árið 1987 sem borgarstjóri Reykjavíkur. Níu ára borgarstjóratíð hans var á gríðarlega miklum umbrota- og framkvæmdatímum í Reykjavík og væri hægt að hafa langt mál um allar breytingarnar sem urðu á borginni í hans valdatíð. Umfangið er þeim mun merkilegra ef haft er í huga að hve miklu leyti borginni var persónulega stjórnað frá skrifstofu borgarstjóra. Þeir stjórnunarhættir höfðu ýmsa galla en á móti kom að hægt var að taka ákvarðanir og hrinda þeim í framkvæmd ótrúlega hratt.“

Kveið því að hitta Davíð 

Snærós Sindradóttir sem rekur SIND gallerí og starfaði um árabil í fjölmiðlum segist ekki hafa snúsað í morgun eftir að hafa vaknað við tíðindin af andláti Davíðs.

Snærós Sindradóttir.

„Davíð Oddsson var forsætisráðherra æsku minnar, risastór fígúra sem ég heyrði fullorðið fólk tala linnulaust um og sem ég myndaði mér snemma skoðun á í því samhengi. Hann var forsætisráðherra þegar Kárahnjúkavirkjun varð að lögum og þegar Íraksstríðið hófst. Tvö mál sem kveiktu pólitískan áhuga minn og voru risavaxin dæmi um óréttlæti heimsins og ósvífni stjórnmálamanna. Stundum heyrðist hvíslað að eitt sinn hefði Davíð verið afar skemmtilegur maður en svo hefði hann forherst í hlutverki sínu og sá sjarmi gufað upp með árunum,“ segir Snærós og rifjar upp forsetaframboð Davíðs árið 2016. 

„Þegar Davíð bauð sig fram til forseta 2016 ætlaði allt um koll að keyra. Alls höfðu 22 lýst yfir framboði, aldrei fleiri, en niðurstaðan varð að 9 tóku slaginn. Ég var ekki lengur barn, orðin blaðamaður á Fréttablaðinu og falið það verkefni að taka viðtöl við frambjóðendur í þremur hollum. Davíð og aðrir toppframbjóðendur voru ósáttir við skiptinguna, en við höfðum ákveðið að splitta þeim upp frekar en að efna til kappræðna. Dreifa gæðunum.“

Forsíða Fréttablaðsins í júní 2016. Davíð ásamt Hildi Þórðardóttur og Elísabetu Jökulsdóttur sem einnig buðu sig fram til forseta.

Hún hafi kviðið því örlítið að hitta Davíð. 

„Og leið eins og hann hlyti að vita að frá barnæsku hefði hann verið litlu skárri en Grýla í mínum bókum. Hann mætti á svæðið í hlutverki sterka mannsins en ég átti nokkur smjörstykki uppi í erminni til mýkingar; talaði um afa og ömmu sem hann hafði kynnst þegar hann var ungur ráðinn sem ritari Leikfélags Reykjavíkur og svo um alla kallana á Morgunblaðinu sem ég hafði kynnst sem krakki.“

Hún hafi hins vegar hitt skemmtilega Davíð.

„Hann var hnyttinn og kátur, leið vel í frekar pressulausu samtali við mótframbjóðendur sína og lék við hvern sinn fingur. Sérstaklega var gaman að fylgjast með tangó þeirra Davíðs og Elísabetar Jökulsdóttur en þar mættust þau, bæði stríðin og jafn eldklár, og skemmtu sér konunglega saman. Þau skutu glettilega á hvort annað, hún á valdið og hann á frelsið. Þetta voru eftirminnilegir neistar og gaman að fá að upplifa Davíð í þessu essi.“

Hún fagnar því að Davíð hafi þó ekki orðið forseti.

„Bessastaðir eiga helst ekki að vera móttökustöð fyrir stjórnmálamenn sem eru orðnir þreyttir á erfiðum ákvörðunum en vilja áfram njóta heitra handabanda almennings. Eftir lifði minning af þessu eina skipti sem ég hitti manninn sem stöðugt var talað um í mín eyru á mótunarárunum. Og af þeim hitting mátti draga lærdóm sem ég geymi enn og hefur margsannast síðan.“

Sá uppteknasti svaraði kallinu

Konráð Jónsson lögmaður á nokkrar góðar sögur af Davíð Oddssyni. Konráð er sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns.

„Ruslafatan í bústað foreldra minna var í skápnum undir vaskinum. Hún var með loki, og lokaðist þegar skápurinn var lokaður. En um leið og skápurinn opnaðist lyftist lokið af henni. Davíð þótti þetta skemmtilegt og reyndi ítrekað að opna skápinn hratt og reyna að „nappa“ ruslafötuna með lokinu á. Hann hafði ekki erindi sem erfiði en mér þótti gaman að sjá þessa leikhlið á honum. Hann sagði um iðnaðarmenn að þeir sviku aldrei meira en þeir lofuðu – hnyttni sem ég gríp ítrekað í þegar eitthvað bjátar á í samskiptum mínum við þá.“

Konráð rifjar upp þegar hann gaf út skólablað í Hlíðaskóla.

„Ég stakk upp á því að taka viðtal við Davíð. Þetta var á þeim tíma þegar hann var úti um allt í umræðunni og það var hlegið að þessu. En ég er þakklátur honum, þessum líklega uppteknasta manni á Íslandi, fyrir að hafa gefið sér tíma til að svara spurningunum frá mér. “

Konráð Jónsson lögmaður er sonur Jóns Steinars, sem um áratugaskeið var einn helsti bandamaður Davíðs.vísir/vilhelm

Margt hafi verið skrifað og sagt um hans opinberu hlið. En ég upplifði ekkert nema hlýju og húmor þegar ég hitti hann.

„Einhvern tímann kom hann í heimsókn til foreldra minna að horfa á fótboltaleik og ég tók að mér að stökkva út í búð fyrir hann og pabba að kaupa popp og diet coke. Á þessum tíma var hann seðlabankastjóri. Hann rétti mér fimmhundruðkall og sagði að ég hlyti að sjá að þetta væri seðill úr hans eigu af því að undirskriftin hans væri þarna.“

Hannes kveður með ljóði

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stórvinur Davíðs, minnist vinar síns með ljóði eftir Sigurð Nordal.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson er sá maður sem hafði Davíð í mestum hávegum.vísir/vilhelm

Falla hinar öldnu eikur, —

ófullt skarð til tveggja handa, —

rótafastar, fagurkrýndar,

friðarmerki skógarlanda.

Úfnar af þjósti og úlfaþyti

eftir birkirenglur standa.

Orðheppinn og fimur

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur hefur ekki verið á sömu línu og Davíð pólitískt en hann minnist merks manns á Facebook; segir hann briddsspilara og sagnaskáld og að hann hafi nálgast stjórnmálin úr tveimur áttum:

„Hann var á sínum bestu árum meistari sviðsetninga og náði að búa til áhrifamiklar sögur með einföldum og sterkum andstæðum góðs og ills sem náðu til fólks. Og orðheppinn og fimur var hann. Með einni snöggri setningu gat hann afgreitt mótbárur við sífellt meiri hlátur og aðdáun. Hann lék leikinn af hugkvæmni og fimi en sagnir hans urðu með tímanum æ stærri og í minni tengslum við spilin á hendi.“

Guðmundur Andri segir að í Davíð hafi verið togstreyta en þar hafi tekist á: frjálslyndi og stjórnlyndi, skilingur og þótti, glaðværð og ofsi.vísir/vilhelm

En svo tók að halla undan fæti, að mati Guðmundar Andra sem segir sögurnar smám saman orðið fjarstæðukenndari fyrir fólkið: illmennin ótrúlegri og málstaður hins góða óljósari. 

„Í honum toguðust á frjálslyndi og stjórnlyndi, skilningur og þótti, glaðværð og ofsi. Farsælastur var hann þegar hann söðlaði um, breytti yfirlýstri stefnu og tók höndum saman við jafnaðarmenn um að koma Íslandi inn í EES með öllum þeim umbótum sem þvi fylgdu. Ég votta fjölskyldu Davíðs og vinum samúð vegna fráfalls hans.“

Dýravinurinn Davíð

Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu grætur sinn yfirmann og segir Íslendinga hafa misst merkan mann. Andrea dregur fram einn þátt í fari Davíðs sem er dálæti hans á dýrum.

„Davíð átti á þessum árum glæsilegan scheffer hund sem hét Tanni. Á leið heim úr leikskólanum voru foreldrar mínir ósjaldan beðnir um að krækja inn Lynghagann til að kíkja á Tanna. Mér skilst að Davíð hafi gjarnan ráðfært sig við Tanna um pólitískar ákvarðanir og að þeir hafi jafnan verið sammála.“

Andrea segir að ekki hafi sér þótt verra þegar Davíð flutti í Skerjafjörðinn í kringum aldamót, í næsta nágrenni við ömmu og afa, þar sem ég ólst upp fyrstu árin. Síðar lágu leiðir þeirra saman á Morgunblaðinu.

Andrea að störfum, þarna þegar stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans var kynnt.vísir/vilhelm

„Ég ber sérstaklega mikla virðingu fyrir því hversu mikill dýravinur Davíð var. Sú mjúka hlið hans skapaði fallegt jafnvægi við stjórnmálamanninn sem þótti svo harður í horn að taka. Í mínum huga segir það meira en margt annað um manngerð fólks hvernig það kemur fram við dýr.“

Vinátta Davíðs við ferfætlinga var ekki bundin við hans eigin dýr, frænka Andreu sem býr nú í húsinu hvar Andrea ólst upp í segir svo frá að Davíð hafi lagt það í vana sinn að setja skál fyrir utan heimili sitt, með mjólk eða rjóma fyrir nágrannakisurnar.

„Ég nefndi þetta við Andrés frænda minn Magnússon sem bætti um betur og sagði mér frá því að í eitt skipti hefði blaðamaður setið um fyrir Davíð við heimili hans. Sá sagði farir sínar ekki sléttar, þar sem Davíð hefði ekki virt hann viðlits. Ekki nóg með það, heldur hefði Davíð þess í stað gefið sig á tal við kött einn sem var þar staddur á sama tíma. Þetta þótti viðkomandi blaðamanni fullkomna niðurlæginguna. Hann vissi ekki þá að þetta var ekki einu sinni kötturinn hans Davíðs.“

Andrea minnist frækins stjórnmálamanns, hetju æsku sinnar, dýravinar og nú síðast yfirmanns, með mikilli hlýju og af djúpri virðingu.

Segin saga

Pétur Már Ólafsson útgefandi segir merka sögu af tilurð útgáfu bókarinnar Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. Í október hafði Davíð, þá forsætisráðherra, samband við Ólaf Ragnarsson hjá Vöku-Helgafelli og kvaðst jafnvel vera með handrit að bók og spurði hvort hann væri til í að skoða. 

„Við Ólafur fórum síðdegis sama dag til fundar við Davíð niðri í Ráðherrabústað en ég var á þeim tíma útgáfustjóri Vöku-Helgafells. Það er skemmst frá því að segja að ég fór heim það kvöld með það verkefni að lesa og meta.“

Að sögn Péturs var þar komið safn fínustu smásagna sem honum þótti lítið þurfa að eiga við svo ákveðið var kýla á þetta, þótt tíminn væri naumur. Bókin var gefin út á mettíma og safnið sló rækilega í gegn. Þeir urðum að endurprenta bókina á milli jóla og nýárs sem er fáheyrt. Og titillinn varð  fleygur og notaður við ýmis tilefni.

„Ég man að ég velti fyrir mér röð sagnanna en þá benti höfundurinn mér á að hún yrði eiginlega að vera svona því að ef upphafsstafirnir í titlum sagnanna væru lesnir lóðrétt kæmi út: SEGIN SAGA.“

Davíð varðist allra frétta

Bókin var svo gefin út á þýsku.

„Ég skaupaði eitthvað við útgefandann, Gerhard Steidl, um að það væri kannski hægt að fá Schröder kanslara til að gefa komment á kápu en þeir Davíð þekktust. Steidl sá engin sérstök tormerki á því – þeir Schröder hefðu verið miklir mátar í ungliðahreyfingu þýskra jafnaðarmanna fyrr á tíð. 

Davíð og Pétur Már kynna bókina Stolið frá höfundi stafrófsins sem kom út 2002. Facebook

Af því varð þó ekki en bókin fékk hins vegar fínustu viðtökur, m.a. í dagblaðinu taz sem er mjög til vinstri í pólitík. Blaðið gerði að umtalsefni að það gengi sjaldan upp að blanda saman stjórnmálum og listum en að á Íslandi væri þessu öðruvísi farið, þar væri nánast hefð fyrir því að stjórnmálamenn kæmu úr listaheiminum.“

Árið 2002 hafði Davíð aftur samband og var nú kominn með nýtt safn sem nefndist Stolið frá höfundi stafrófsins. Það samstarf var að sögn Péturs Más ekki síður ánægjulegt. 

„Við kynntum bókina á blaðamannafundi í Iðnó þar sem hann sagðist m.a. vera með stærra bókmenntaverk í smíðum. Því miður varð ekki framhald af útgáfu á skáldverkum Davíðs - að minnsta kosti ekki á meðan hann var á lífi, hvað svo sem kann að leynast í fórum hans. Ég spurði hann stundum út í bókaskrif og hvatti hann líka til að rita ævisögu sína sem mikill fengur hefði verið að en hann varðist ævinlega allra frétta.“

„Þið þurfið að spyrja mig!“

Bubbi Morthens tónlistargoðsögn í lifanda lífi segir af kynnum sínum við Davíð.

„Davíð Oddsson var í níunni maðurinn í íslenskri pólitík, ungur, ferskur og bjó yfir hroka í bland við kaldhæðni og sjarma sem einhvern veginn stafaði ljóma af. Við sem þoldum hann ekki dáðumst samt að honum.“

Bubbi Morthens segir að við komum og við förum. Blessuð sé minning Davíðs.vísir/lýður

Leiðir þeirra lágu stundum saman og í tvígang hjálpaði Davíð Bubba með aðgang að byggingum sem Bubbi fékk að nota undir útgáfuhóf í sambandi við plötuútgáfu og svo þegar bókin góða um Bubba, sem Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði, kom út. 

„Ég fékk sem sagt að nota fokhelda Perluna og ég fékk að nota Sundhöll Reykjavíkur um kvöld. Báðir þessir viðburðir slógu í gegn. Perluna fengum við Þorstein Kragh þannig að við stóðum í biðröð á Bæjarins bestu og þar var Davíð líka. Við spurðum hann hvað við þyrftum að gera til að fá að halda partí í Perlunni. Hann glotti og svaraði: Þið þurfið að spyrja mig! Þá spurðum við og hann sagði já. Sama var með Sundhöllina. Við höfðum fengið nei á öllum stöðum en hann svaraði: Góð hugmynd!“

Boð í ráðhúsið

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsókarmanna í borginni, bauð Davíð í hádegismat á skrifstofuna þegar hann var borgarstjóri.

„Ég var örlítið óviss um hvernig hádegisverðurinn yrði því síðustu samskipti okkar voru eftir kappræður daginn fyrir forsetakosningarnar 2016 og þar var hann frekar ósáttur við rimmu sem við áttum í þættinum. „Davíð gleymir engu“ hugsaði ég.“

Einar ákvað engu að síður að bjóða Davíð í ráðhúsið því honum þótti áhugavert að ræða við hann um borgarmálin. 

Davíð hafði forgöngu að byggingu ráðhússins og Einar bauð honum til hádegisverðar þangað.Facebook

„Hann þáði boðið undir eins enda hafði honum aldrei áður verið boðið á skrifstofu borgarstjóra í ráðhúsinu við Tjörnina sem hann þó hafði forgöngu um að yrði byggt. Hann sagðist frekar vilja fisk en kjöt því hann væri að passa upp á heilsuna. Ég fann að honum þótti vænt um að vera boðið.“

Einar segir að einkar gaman hafi verið að hitta Davíð, þennan mikla karakter sem mótaði stjórnmál æsku sinnar kynslóðar. 

„Davíð fór á kostum í hádegisverðinum, sagði frá hinum og þessum uppákomum í borgarstjóratíð sinni, meðal annars því þegar hann fékk fjarstýringu að gosbrunninum í Tjörninni og notaði hana til að kveikja á honum og bregða fólki sem gekk framhjá.“

„Fyrir mér verður hann alltaf Bubbi kóngur“

Signý Pálsdóttir lék á móti Davíð í uppfærslu MR í hinni frægu og rómuðu sýningu Bubbi kóngur eftir Jarre. Líklega hefur engin menntaskólasýning verið rifjuð upp jafn reglulega og einmitt þessi sýning.

Signý minnist þessa gamla mótleikara síns:

„Glæstur var ferill Davíðs Oddssonar heitins, en fyrir mér var hann alltaf Bubbi kóngur í Herranótt MR á sviði Þjóðleikhússins og í sjónvarpi 1969 þar sem mér hlotnaðist sú upphefð að leika Bubbu drottningu hans. Davíð var frábær leikari og gott að leika á móti honum. Blessuð sé minning hans og samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina.

Þrumuræða Davíðs á Landsfundinum 2010

Hermann Guðmundsson forstjóri segir að nú, þegar hann hafi fengið þær fregnir að Davíð Oddsson væri allur, sé fyrsti Landsfundur Sjálfstæðisflokksins sem hann sat það sem er honum efst í huga.

Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi segir rafmagn hafa farið um salinn þegar Davíð gekk á svið.vísir/vilhelm

„Þetta var árið 2010 og samfélagið var eins og opið sár eftir allt það sem gekk á í bankahruninu en ekki síst eftirmálum þess. Þar sem ég sat á borði Hafnarfjarðardeildar varð ég var við að mikill kurr fór allt í einu um salinn rétt fyrir kl.13 þennan dag.“

Hermann litaðist um, sá ekkert markvert en spurðist þá fyrir á næsta borði og frétti að fyrrum formaður flokksins Davíð Oddsson hefði kvatt sér hljóðs utan dagskrár. 

„Erindi hans set ég hér undir, það varð mér ógleymanlegt og ég spila það á hverju ári.“

Hermann lýsir því að rafmagn hafi farið um salinn þegar Davíð gekk á svið og í pontu var áþreifanlegt. 

„Svona sterka áru hef ég ekki fundið fyrr né síðar í troðfullum 2.000 manna sal. Hans afrek eru óteljandi og verða ekki rakin hér. Ég tel hins vegar að mín kynslóð eigi stóran hluta af bættum lífskjörum honum að þakka ásamt hans samstarfmönnum,“ segir Hermann.

Fréttin verður uppfærð með fleiri minningarorðum um Davíð eftir því sem líður á daginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.