Upp­gjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðar­enda

Siggeir Ævarsson skrifar
Valur - Haukar Bónus Deild Kvenna Vetur 2026
Valur - Haukar Bónus Deild Kvenna Vetur 2026 vísir/Diego

Íslandsmeistarar Hauka unnu sterkan 85-59 útisigur á Val í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Leikurinn fór afar rólega af stað sóknarlega enda hér að mætast tvö lið sem leggja mikla áherslu á varnarleik. Eftir fyrstu tíu mínúturnar voru aðeins rúm 30 stig komin á blað og staðan 15-16 í afar jöfnum leik.

Gestirnir voru ögn frískari í næsta leikhluta en bæði lið áfram frekar róleg sóknarlega. Þristarnir voru engan veginn að detta hjá heimakonum en þær enduðu á að setja aðeins fjóra í öllum leiknum. Staðan í hálfleik 28-34 og leikurinn galopinn fyrir bæði lið.

Haukar hófu seinni hálfleik á þristi og settu þar með tóninn fyrir það sem koma skyldi. Eftir að hafa aðeins skorað 34 stig í fyrri hálfleik skoruðu gestirnir 51 í seinni hálfleik og þar af 31 í fjóra leikhluta þar sem Haukar gerðu algjörlega út um leikinn.

Heimakonur komu aðeins 13 stigum á blað í fjórða leikhluta og munurinn varð fljótt óyfirstíganlegur. Lokatölur á Hlíðarenda 59-85 og ekki hægt að kalla það annað en sanngjarnan sigur gestanna.

Stjörnur og skúrkar

Þær Amandine Justine Toi, Tinna Guðrún Alexandersdóttir og Krystal-Jade Freeman fóru fyrir stigaskori Hauka með 19, 18 og 18 stig en Tinna setti niður sex þrista í átta skotum.

Varnarlega átti Sigrún Björg Ólafsdóttir frábæran leik. Hún var óþreytandi í pressuvörn Hauka og stal alls sjö boltum í kvöld. Hún bætti svo við tíu stigum og sex stoðsendingum að auki.

Hjá Val var Reshawna Rosie Stone stigahæst með 21 stig og Ásta Júlía Grímsdóttir kom næst með 16

Atvik leiksins

Í hálfleik ákvað plötusnúður kvöldsins að henda í We are the champions með Queen. Algjörlega taktlaust svona á miðju tímabili, óskiljanleg ákvörðun og dómgreindarleysi í raun.

Dómararnir

Það fór lítið fyrir dómurunum í kvöld og þeir komust ágætlega frá þessum leik að mínu faglega mati. Alyssa Cerino vildi að vísu fá miklu oftar villu en í þessi sjö skipti sem hún sótti villu en það er eins og það er.

Stemming og umgjörð

Ég hef nú oft verið á körfuboltaleik þar sem lætin voru meiri í stúkunni en í kvöld, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Ríkjandi Íslandsmeistarar mættu með svona tíu áhorfendur með sér og virtust ekki ná að trekkja mikið að í hinum enda stúkunnar heldur. Mér varð óumflýjanlega hugsað til viðtals sem ég tók við Viðar Örn Hafsteinsson í þessu sama húsi hér um árið.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira