Uppgjörið:Valur - KR 68-71| KR slapp með skrekkinn í Reykjavíkurslagnum

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Haukar KR. Bónus deild kvenna 2025 körfubolti KKÍ.
Haukar KR. Bónus deild kvenna 2025 körfubolti KKÍ.

Valur tók á móti KR þegar fyrsta umferð eftir skiptingu A og B hluta Bónus deild kvenna leið undir lok í kvöld. Það er mikil barátta um öll sæti og sú barátta varð ekkert minni á Hlíðarenda í kvöld.

Eftir mikla baráttu og sveiflur í báðar áttir voru það KR sem fóru að lokum með gríðarlega sterkan þriggja stiga sigur 68-71.

Leikurinn fór fór hægt af stað og kom fyrsta stigið af vítalínunni hjá KR. Valur svaraði með næstu fjórum stigum en svo tók við mikil barátta þar sem lítið var gefið eftir.

KR náði flottu áhlaupi þar sem þær settu tvær þriggja stiga körfur með stuttu millibili og náðu að búa sér til gott andrými sem hélt út leikhlutann og KR leiddi með fimm stigum 14-19 eftir fyrsta leikhluta.

Gestirnir úr Vesturbæ héldu áfram að vera til vandræða í öðrum leikhluta og héldu áfram að reynast Val erfiðar. Eve Braslis reyndist Val einstaklega erfið viðureignar í fyrri hálfleik og endaði hálfleikinn með 17 stig fyrir KR.

Í hvert sinn sem Valur hótaði því að koma nær duttu stóru skotin fyrir KR og þær náðu að halda Val í hæfilegri fjarlægð. Þegar liðun gengu til búningsklefa í hálfleik var KR átta stigum yfir 31-39.

KR byrjaði þriðja leikhluta vel og settu tvær þriggja stiga körfur í röð þegar lítið var liðið af leikhlutanum og virtust vera gera sig líklegar til þess að hlaupa með leikinn.

Eftir því sem á leið leikhlutann var það þó Valur sem herti tökin og byrjaði að saxa niður forskot KR jafnt og þétt. KR leiddi með þrettán stigum þegar best lét en eftir þriðja leikhluta var staðan 52-57 KR í vil.

Valur mætti mun grimmari og kraftmeiri í fjórða leikhlutann. Eftir mikla baráttu og vinnu náðu þær að snúa leiknum sér í hag og náðu forystu þegar rétt um þrjár mínútur voru eftir.

KR hafði þó ekki sagt sitt síðasta og náði frábærum kafla undir lok leiks þar sem þær sóttu forystuna aftur og reyndust á endanum sterkari og þrátt fyrir að Valur hafi fengið tvö tækifæri til þess að jafna leikinn undir lokinn fór KR með öflugan þriggja stiga sigur 68-71.

Atvik leiksins 

Valur hafði gert frábærlega að vinna sig aftur inn í leikinn og náð forystu en misstu örlítið einbeitingu á ögurstundu sem skilaði sér í fimm hröðum stigum frá KR í röð sem kom þeim aftur skrefinu framar og á endanum tryggði sigur KR.

Stjörnur og skúrkar

Eve Braslis var öflug fyrir KR í kvöld og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Hún endaði stigahæst í kvöld með 19 stig. Molly Kaiser var einnig erfið viðureignar og endaði með 14 stig og var erfið á báðum endum vallarins.

Hjá Val var Alyssa Cerino að setja stóru skotin og halda lífi í þessu fyrir Val. Hún var stigahæst í liði Vals með 16 stig.

Dómararnir

Sigmundur Már, Ingi Björn og Einar Valur voru á flautunni í kvöld.

Einstaka atriði sem var kvartað yfir í leiknum en að mínu mati var þetta bara þokkalega dæmt hjá tríóinu í kvöld.

Stemingin og umgjörð

Kalt úti svo það er gott að vera inni í hlýjunni á Hlíðarenda. Það var fínasta mæting hér í kvöld og þegar stúkan tók við sér myndaðist fínasta stemning. Umgjörðin er svo alltaf í toppmálum á Hlíðarenda.

Viðtöl

Daníel Andri, þjálfari KR.Vísir/Anton Brink

„Flottur karakter að halda þetta út og klára þetta“

„Mestmegnis bara varnarsinnað, bæði lið áttu augljóslega miðað við loka skot bara mjög erfitt með að finna auðveldar opnanir“ sagði Daníel Andri Halldórsson þjálfari KR eftir sigurinn í kvöld.

„Við gerðum bara vel í þrjá leikhluta að halda þeim svolítið frá sóknar fráköstum og leyfa þeim að búa til eitthvað úr því. Við misstum aðeins tökin hérna í restina en bara flottur karakter að halda þetta út og klára þetta“

KR voru með mikla yfirburði í fyrri hálfleik og byrjun seinni en hleypa Val svo inn í þetta um miðjan þriðja leikhluta og eru hálf heppnar að sleppa með skrekkinn í kvöld.

„Það er bara verið að gera breytingar inni á vellinum bara til og frá, leita af einhverjum ákveðnum varnarmönnum til að sækja á sitthvoru meginn og bæði lið eru bara að bregðast við því og svo þarf bara að leita nýrra leiða til að leita af næstu körfu. Þetta var bara varnarsinnað báðu megin“

„Við vorum skynsamar undir restina og sérstaklega þegar við vorum yfir þá vorum við að nota klukkuna vel og leita saman að rétta skotinu og mér fannst við bara loka þessum leik mjög vel þrátt fyrir að við höfum gefið þeim tvo sénsa hérna í restina til að jafna en við sluppum með skrekkinn“ sagði Daníel Andri Halldórsson.

Jamil Abiad er þjálfari Valskvenna.Vísir/Anton Brink

„Leikirnir verða ekket auðveldari“

„Við kláruðum ekki og vörnin okkar var mjög slök í dag“ sagði Jamil Abiad svekktur eftir tapið í kvöld.

„Sóknarlega þá stundum vill boltinn bara ekki fara niður. Það sem þú gerir sóknarlega og gæði skotana, þú getur stjórnað því og í dag fannst mér við gera það illa og vorum ekki að ná góðum skotum“

Eftir frekar slakan fyrri hálfleik og byrjun á síðari mætti Valur með miklum krafti og voru ekki langt frá því að snúa leiknum sér í hag.

„Við vorum með meiri orku og fórum að spila vörn. Það hefur verið okkar einkenni í ár og það sem lið þekkja okkur fyrir er vörn. Þegar við spilum vörn erum við frábærar en þegar við dettum niður þá er það ekki gott“

„Við verðum að treysta því sem við erum búin að vera gera allt tímabilið og við erum að framkvæma það sem við leggjum upp með“

„Leikirnir verða ekkert auðveldari og þú ert einni sókn frá sigri eða tapi. Það verða engir stórsigrar eða neitt svoleiðis þar sem öll lið eru að leggja allt í sölurnar núna og við verðum að tryggja að við klárum það sem við höfum stjórn á“

„Stundum fer skotið niður og stundum ekki en þú getur alltaf stjórnað því hvað þú leggur á þig á gólfinu“ sagði Jamil Abiad.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira