Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Kjartan Kjartansson skrifar 19. febrúar 2026 10:27 J. D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, í óvinsælli heimsókn til Grænlands í fyrra. Hann ferðaðist þangað í óþökk grænlenskra og danskra stjórnvalda. Ásælni Bandaríkjastjórnar í Grænlandi virðist hafa fengið dönsku þjóðina upp á móti Bandaríkjunum. Íslendingar eru einnig tortryggnir í garð Bandaríkjanna, þó ekki í sama mæli og Danir um þessar mundir. AP/Jim Watson Rúmlega fjörutíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast telja Bandaríkin andstæðing Íslands en tæpur þriðjungur að þau séu bandamaður. Fjórðungur svarenda segist ekki vita svarið.
Skoðanakönnunin sem Maskína gerði er byggð á samskonar könnun sem var gerð í Danmörku nýlega. Þar hefur almenningsálit snúist gegn Bandaríkjunum í kjölfar stöðugra ógnana bandarísku ríkisstjórnarinnar í garð Grænlands. Sextíu prósent danskra svarenda sögðust telja Bandaríkin andstæðing en aðeins sautján prósent bandamann. Niðurstöður Maskínu voru ekki eins afgerandi en þó voru marktækt fleiri sem lýstu Bandaríkjunum sem mótherja en samherja eins og staðan er um þessar mundir. Könnunin var gerð dagana 6. til 12. febrúar. Konur voru mun líklegri en karlar til þess að líta Bandaríkin neikvæðum augum. Tæpur helmingur þeirra lýsti Bandaríkjunum sem andstæðingi en innan við þriðjungur karla. Rúm 46 prósent karla töldu Bandaríkin bandamann Íslands en aðeins sautján prósent kvenna. Yngra fólk var líka líklegra til þess að telja Bandaríkin andstæðing en eldri aldurshópar. Skautun eftir stjórnmálaskoðunum Kjósendur Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins skáru sig afgerandi úr í afstöðunni til Bandaríkjanna. Aðeins hjá þessum tveimur flokkum sagðist meirihluti líta á Bandaríkin sem bandamann. Innan við ellefu prósent miðflokksmanna lýstu Bandaríkjunum sem andstæðingi en tæp 69 prósent sem bandamanni. Tæp 58 prósent sjálfstæðismanna sögðust telja Bandaríkin bandamann en rúm 23 prósent andstæðing. Meirihluti kjósenda stjórnarflokkanna þriggja sögðust líta á Bandaríkin sem andstæðing, þar af 57 prósent samfylkingarfólks. Um fimmtungur samfylkingarfólks taldi Bandaríkin bandamann en um fjórðungu kjósenda Viðreisnar og Flokks fólksins. Fleira framsóknarflokks taldi Bandaríkin andstæðing en bandamann, 36 prósent gegn 33 prósentum. Mesta andstaðan við Bandaríkin mældist hjá kjósendum Sósíalistaflokksins en 93 prósent þeirra sögðust líta á landið sem andstæðing og aðeins rúm fjögur prósent sem bandamann. Rúm 75 prósent pírata litu Bandaríkin sömu neikvæðu augum og um 53 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna.
Skoðanakannanir Bandaríkin Donald Trump Grænland Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira