Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Jakob Bjarnar skrifar 17. febrúar 2026 16:00 Brynjar Níelsson hefur tiltölulega óvænt dregið umsókn sína um stöðu héraðsdómara til baka. Vitað er að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni hefur augastað á honum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en kjörnefnd fæst nú við að raða upp sigurstranglegum lista. vísir/vilhelm Gunnarsson Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur dregið umsókn sína um embætti héraðsdómara til baka. Hann segist ekki frágengið hvað taki við.
Dómsmálaráðuneytið auglýsti þann 5. desember 2025 í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs dómara stendur. „Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögnunum sínum til ráðherra. Það er niðurstaða dómnefndar að Sindri M. Stephensen sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Þá er það niðurstaða dómnefndar að Brynjar Níelsson sé hæfastur umsækjenda til að hljóta setningu í embætti héraðsdómara. Eftir að umsögn dómnefndar barst ráðherra dró Brynjar Níelsson umsókn sína til baka,“ segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Brynjar segist ekki fyrsti maðurinn sem dregur umsókn til baka. „Nú er tvennt í stöðunni, að fara á eftirlaun eða fara aftur í pólitík.“ Víst er að kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins horfir til Brynjars vonaraugum en hún fæst nú við að stilla upp sigurstranglegum lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Og, hvort verður ofan á? „Von að spurt sé en það það liggur ekki fyrir. Soffía vill helst ekki hafa mig heima allan daginn,” sagði Brynjar í stuttu samtali við fréttastofu. En Soffía er einskonar skáldleg útgáfa á eiginkonu Brynjars sem oft dúkkar upp í Facebook-pistlum hans.
Stjórnsýsla Sjálfstæðisflokkurinn Dómstólar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira