Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2026 14:16 Mohammed Hamdan Dagalo leiðir uppreisnarhópinn Rapid Support Forces. AP/Mahmoud Hjaj Að minnsta kosti sex þúsund manns voru myrt á þriggja daga tímabili þegar borgin El Fasher í Súdan féll í hendur uppreisnarmanna Rapid Support Forces (RSF) í október. Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna segir að umfang ofbeldisins og grimmdarverka í borginni hafi verið af sláandi skala. Ódæðin hafi verið gífurleg og líklega sé um að ræða stríðsglæpi og mögulega glæpi gegn mannkyninu.
Fljótt eftir fall hennar fóru að berast fregnir af umfangsmiklum ódæðum RSF-liða sem voru ófeimnir við að taka sjálfa sig upp við að myrða óbreytta borgara og birta myndböndin á netinu. Fjölda fólks er enn saknað eftir fall borgarinnar. Rannsakendur Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna ræddu við rúmlega 140 vitni og fórnarlömb ofbeldis í Súdan og austurhluta Tjad en þangað flúðu margir frá borginni þegar hún féll. Gervihnattamyndir vörpuðu í kjölfarið ljósi á umfang ódæðanna í El Fasher, þar sem stórir blóðpollar og hrúgur líka voru sýnilegar á þeim. Áðurnefndir rannsakendur segja að minnsta kosti 4.400 manns hafa verið myrta í borginni og að rúmlega 1.600 hafi verið myrtir á flótta þaðan. Tekið er fram í skýrslunni að þessar tölur séu algjört lágmark. Raunverulegur fjöldi þeirra sem voru drepnir sé líklega mun meiri. Auk þess að myrða fjölda fólks frömdu RSF-liðar og bandamenn þeirra umfangsmikil kynferðisbrot, pyntuðu fólk, rændu fólk og fólki og eru þeir sagðir hafa rænt börnum til að nota í hernaði. Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir umfang ofbeldisins fordæmalaust og það sama megi segja um grimmdina. Sjá einnig: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Rannsakendur ræddu við nokkur vitni þar sem vígamenn skutu úr þungavopnum á stóran hóp fólks sem hafði leitað skjóls í háskólanum í El Fasher. Þá dóu um fimm hundruð óbreyttir borgarar, samkvæmt vitnum. Eitt þeirra líkti árásinni við hryllingsmynd. Nauðsynlegt að rannsaka ódæðin frekar Türk segir að nauðsynlegt sé að rannsaka ódæðin ítarlega og draga þá sem bera ábyrgð á ódæðunum til ábyrgðar. Það verði annaðhvort að vera gert af yfirvöldum í Súdan, gegnum alþjóðastofnanir eða með öðrum leiðum. Þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem RSF-liðar og bandamenn þeirra eru sakaðir um umfangsmikil ódæði. Uppreisnarmennirnir eru sagðir hafa komið hræðilega fram við fólk í Súdan og í Darfur-héraði, þar sem þeir eru allsráðandi. Þá kallar Türk eftir því að alþjóðasamfélagið grípi til aðgerða og reyni að binda enda á átökin. Borgarastyrjöldin í Súdan hófst árið 2023. Átökin hafa komið verulega niður á almenningi í Súdan og hafa þau verið mjög grimmileg. Milljónir hafa lengi staðið frammi fyrir hungursneyð vegna átakanna. Báðar fylkingar hafa verið sakaðar um stríðsglæpi og kynferðisofbeldi er mjög umfangsmikið. Abdel Fattah Al Burhan, leiðtogi hers Súdan, og Mohamed Hamdan Dagalo, leiðtogi RSF, tóku höndum saman árið 2021 og frömdu valdarán í Súdan. Árið 2023 stóð svo til að innleiða RSF í herinn en Dagalo var mótfallinn því og hófust átök þeirra á milli í kjölfarið. RSF var lengi með yfirhöndina í átökunum en stjórnarherinn sótti svo verulega á í fyrra og í upphafi þessa árs. Herinn rak vígamenn RSF frá Khartoum, höfuðborg Súdan, í mars. RSF hefur notið stuðnings annarra ríkja eins og Rússlands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Súdan Sameinuðu þjóðirnar Hernaður Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira