Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Agnar Már Másson skrifar 14. febrúar 2026 22:36 Havana-heilkennið er enn óleyst ráðgáta. Getty Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki.
Bandaríska stórblaðið Washington Post greindi frá því í dag að vísindamaður á vegum norska ríkisins hefði árið 2024 þróað örbylgjuvopn og prófað það á sjálfum sér. Tilgangurinn hafi verið sá að sanna að slík tækni væri mönnum skaðlaus, en það hafi ekki gengið sem skyldi. Að sögn blaðsins, sem vísar til fjögurra ónafngreindra heimildarmanna, á Norðmaðurinn að hafa fundið fyrir taugatengdum veikindum sem líkjast hinu svokallaða Havana-heilkenni. Norskir miðlar greina margir frá málinu með vísan í umfjöllun Washington Posts. Nettavisen tekur aftur á móti fram að samskiptateymi norska varnarmálaráðuneytisins segist kannast við umfjöllun bandaríska stórblaðsins, en ekki málið sjálft. Óútskýrð veikindi meðal hundraða bandarískra ráðamanna Havana-heilkennið vísar til veikinda og óútskýrðra heilbrigðisvandamála sem bandarískir og kanadískir embættismenn og erindrekar hafa kvartað yfir á undanförnum árum. Heyrnartap, ógleði, svimi og miklir höfuðverkir eru meðal þess sem fólk hefur fundið fyrir en fyrstu tilfellin greindust í sendiráði Bandaríkjanna í Havana á Kúbu seint árið 2016. Síðan þá hafa rúmlega hundrað manns frá Bandaríkjunum og Kanada víðs vegar um heim sagst hafa fundið fyrir sömu einkennum. Margir þeirra eru sérfræðingar í málefnum Rússlands eða í viðkvæmum stöðum innan stjórnvalda Bandaríkjanna. Norðmenn hafi upplýst CIA Norska ríkisstjórnin mun hafa upplýst leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) um málið, samkvæmt tveimur heimildarmönnum sem Washington Post vísar til. Fyrir vikið hafi ráðamenn úr bandaríska varnamálaráðuneytinu og Hvíta húsinu hið minnsta tvisvar heimsótt Noreg vegna málsins. Þeir sem þekkja til norska málsins segja við stórblaðið að vopnapróf norska vísindamannsins sanni ekki að óútskýrðir heilsufarskvillar séu af völdum erlendra fjenda sem beiti vopnum á borð við það sem hér um ræði. Einn þeirra hafi samt sagt að Norðmaðurinn hafi ekki fundið fyrir sömu einkennum og í „hefðbundnu“ tilfelli óútskýrðra heilsufarskvilla. En Washington Post vill meina að atvikið styðji við málstað þeirra sem halda því fram að tækni sem sendir frá sér örbylgjur í stuttum skömmtum geti haft áhrif á mannslíkamann og sé líklega í þróun hjá andstæðingum Bandaríkjanna. Blaðið hefur eftir Paul Friedrich, herskurðlækni á eftirlaunum og fyrrverandi hershöfðingja í flughernum, að sannfærandi vísbendingar séu uppi um að Bandaríkin þurfi að hafa áhyggjur af hugsanlegum örbylgjuvopnum. Friedrich, sem hafði málefni líffræðilegra ógna á sinni könnu í þjóðaröryggisráði Hvíta hússins í forsetatíð Joes Biden, neitaði aftur á móti að tjá sig um sjálfa tilraunina í Noregi. Óleyst ráðgáta Í einhverjum tilfellum síðustu ára hafa fylgikvillar veikinda verið svo miklir að fólk hefur þurft að setjast í helgan stein og getur ekki átt hefðbundið líf án aðstoðar. Árið 2024 bendluðu blaðamenn nokkurra miðla leynilega sveit rússneskra njósnara við heilkennið. Heilkennið er enn óleyst ráðgáta sem heldur áfram að næra sögur um dularfull vopn og leynilegar tilraunir stórvelda. Prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir fjölluðu nýlega um Havana-heilkennið í Skuggavaldinu.
Bandaríkin Kúba Noregur Öryggis- og varnarmál Rússland Mest lesið Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð Innlent Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið Erlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira