Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. febrúar 2026 08:14 Stórfyrirtæki og atvinnurekendur eru verulega á móti tillögunum. Getty Svisslendingar munu ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um tillögur Þjóðarflokksins um að takmarka fjölda landsmanna við 10 milljónir.
Samkvæmt tillögu hægriflokksins myndu stjórnvöld verða að grípa til aðgerða ef íbúar Sviss, sem nú telja 9,1 milljón, verða 9,5 milljónir með því að stöðva aðflutning fólks. Þannig yrði meðal annars hætta að taka við hælisleitendum og fjölskyldumeðlimum íbúa með erlent ríkisfang. Ef íbúafjöldinn næði 10 milljónum þyrfti að grípa til frekari aðgerða og stjórnvöld meðal annars neydd til að draga sig úr samkomulagi við Evrópusambandið um frjálsa för fólks. Um það bil 27 prósent íbúa Sviss eru með erlent ríkisfang og Þjóðarflokkurinn segir gríðarleg íbúafjölgun hafa valdið því að innviðir landsins séu við þenslumörk. Þjóðaflokkurinn hefur verið stærsti flokkur Sviss frá 1999 og hefur beitt sér mjög fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum um hin ýmsu mál en mál eru tekin til atkvæðagreiðslu ef 100.000 manns kalla eftir því á átján mánaða tímabili. Aðeins um tíu prósent mála sem tekin eru til þjóðaratkvæðagreiðslu ná fram að ganga en 48 prósent sögðust fylgjandi 10 milljóna tillögunni í skoðanakönnun í desember. Hún hefur hins vegar mætt mikilli andstöðu meðal annarra flokka og stórfyrirtækja á borð við Roche, UBS og Nestlé, sem segja hana grafa undan tvíhliða samningum landsins við Evrópu. Um helmingur alls útflutnings Sviss fer til aðildarríkja Evrópusambandsins.
Sviss Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira