Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 15:07 Nái vilji meirhluta borgarstjórnar fram að ganga þá fá börn á grunnskólaaldri frítt í Strætó í Reykjavík í vor. Vísir/Vilhelm Frá og með 1. maí næstkomandi munu börn á grunnskólaaldri í Reykjavík ekki þurfa að greiða fargjald í Strætó, nái áform borgarstjórnar fram að ganga. Tillaga meirihlutans í Reykjavík þess efnis var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Markmiðið er að með þessu verði aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum bætt og þannig hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþróttir- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.
Þá er lagt upp með að með þessu verði hægt að jafna tækifæri barna, draga úr aðstöðumun og styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum um borgina að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg um málið. „Borgarstjórn fól borgarstjóra að vinna áfram að málinu í samstarfi við fjármála- og áhættustýringarsvið, skóla- og frístundasvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið og Strætó. Í því felst að kostnaðarmeta tillöguna, móta nánari útfærslu og undirbúa framkvæmd hennar. Tillaga að endanlegri útfærslu verður lögð fyrir borgarráð til staðfestingar,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Þá verði stefnt að áframhaldandi samtali við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu um útfærslur þessa, með það að markmiði að hægt verði að afnema gjaldtöku fyrir öll börn á grunnskólaaldri á öllu þjónustusvæði Strætó. Við afgreiðslu málsins í borgarstjórn fyrr í dag hafnaði meirihlutinn málsmeðferðartillögu Sjálfstæðisflokksins um að tillögunni yrði vísað til umsagnar Strætó BS og fjármálasviðs borgarinnar. Breytingartillögu Framsóknarflokksins um málið var einnig hafnað. Tillagan í heild var loks samþykkt með 17 atkvæðum borgarfulltrúa samstarfsflokkanna fimm í meirihluta, Framsóknarflokks og Viðreisnar, en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Strætó Samgöngur Börn og uppeldi Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira