Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. febrúar 2026 21:38 Feðgarnir skömmu eftir að þeir losnuðu úr haldi heimavarnaráðuneytisins í gærkvöldi. AP Hinum fimm ára Liam Conejo Ramos og föður hans hefur verið sleppt úr haldi. Þeir feðgar voru teknir fastir af ICE-liðum í Minneapolis og látnir dvelja í sérstökum „fjölskyldufangageymslum“ í Texas.
Mynd af Liam þar sem ICE-liði leiðir hann um borð í lögreglubíl með bláa kanínuhúfu á höfðinu og Köngulóarmannsbakpoka vakti ómælda reiði um allan heim. Kominn heim með húfuna og bakpokann Joaquin Castro, þingmaður demókrata frá Texas, greindi frá því í dag að Liam Conejo Ramos og faðir hans, Adrian Alexander Conejo Arias, hefðu verið látnir lausir úr Dilley-fangabúðunum í Texas og væru komnir aftur til Minneapolis. „Liam er nú kominn heim. Með húfuna sína og bakpokann,“ sagði hann á samfélagsmiðlum. Handtaka feðganna varð tilefni mótmæla fyrir utan fangabúðirnar þar sem þeir dvöldu og víðar. Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna þvertekur fyrir það að fulltrúar þess hafi handtekið barn heldur hafi verið um neyðarráðstöfun að ræða þar sem enginn aðstandandi vildi gæta barnsins. Þessu vísa aðstandendur feðganna alfarið á bug. Harðorður umdæmisdómari Umdæmisdómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði að feðgarnir yrðu látnir lausir og var harðorður í áliti sínu, þar sem hann vitnaði til sjálfstæðishetja og guðspjallamanna til skiptis. „Málið má rekja til illa ígrundaðra og vanhæfra tilrauna stjórnvalda til að ná daglegum brottvísunarkvótum, jafnvel þótt það krefjist þess að valda börnum áföllum. Athugun á atferli manna staðfestir það að innra með sumum okkar á taumlaus valdafýsn og grimmd engin mörk,“ skrifaði hann meðal annars. Á meðan feðgarnir dvöldu í fangabúðunum í Texas hafði Castro skrifað á samfélagsmiðlum að drengnum liði ekki vel fjarri fjölskyldu sinni, bekkjarfélögum og heimili. Heimavarnaráðuneytið segir feðgana hafa komið ólöglega til Bandaríkjanna, en lögmaður fjölskyldunnar segir þá hafa farið eftir viðurkenndum og réttum leiðum við umsókn um hæli en þeir eru flóttamenn frá Ekvador.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira