Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. janúar 2026 06:55 Þessi mynd er frá því í ágúst í fyrra en miðlar vestanhafs greindu frá því í gær að Trump hefði látið hengja myndina sem hann heldur á, af sér og Pútín, upp á áberandi stað í Hvíta húsinu. Getty/Chip Somodevilla Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði heitið því að gera tímabundið hlé á loftárásum sínum á Kænugarð, sem hafa miðað að því að valda skemmdum á orkuinnviðum og svipta íbúa hlýju í vetrarkuldanum.
Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti og Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, hafa fagnað ummælum Trump en þau hafa ekki verið staðfest af stjórnvöldum í Rússlandi né hafa fregnir borist af því að árásunum hafi raunverulega linnt. „Við vonum að Bandaríkin geti látið þetta verða að veruleika,“ sagði Selenskí og þakkaði Trump fyrir milligöngu hans í málinu. Spáð er allt að 30 stiga frosti í Úkraínu á næstu dögum. Þreifingar standa enn yfir í þríhliða viðræðum Úkraínu, Bandaríkjanna og Rússlands um varanlegan frið. New York Times hefur eftir einum ráðgjafa Selenskís að Úkraínumenn hafi óskað eftir því við Rússa í síðustu viku að þeir gerðu tímabundið hlé á árásum og að Rússar hefðu samþykkt en ekki skriflega. Þeir hafa staðið í umfangsmiklum árásum síðustu daga og vikur, sem hefur leitt til þess að þúsundir heimila í Kænugarði hafa verið án rafmagns. Eftir því sem næst verður komist áttu þó engar stórar árásir sér stað í gær. Trump sagðist sjálfur hafa ítrekað ósk Úkraínumanna við Pútín og að hann hefði samþykkt að verða við henni. Það vekur þó athygli að engar fregnir hafa borist af samtali milli leiðtoganna tveggja.
Rússland Úkraína Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Sjá meira