„Að gefnu tilefni vil ég ítreka að ég er ekki í afneitun“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2026 18:00 Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir hefur verið fremsta skíðakona Íslands síðustu ár en fær ekki að keppa á Vetrarólympíuleikunum í næsta mánuði. Getty/Jens Büttner/ Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir hefur svarað þeirri fullyrðingu formanns Skíðasambandsins að hún sé í afneitun og að ákvörðunin hefði ekki átt að koma Hólmfríði á óvart.
Gísli Reynisson, umræddur formaður, sagði ákvörðunina hafa verið tekna út frá fyrirliggjandi gögnum, læknisskýrslu sem sagði hana ekki hæfa til keppni. Hólmfríður Dóra fór yfir sitt sjónarhorn á þessa skoðun formannsins en hún hafði áður rætt þessi vonbrigði í viðtali á Vísi. „Eins og komið hefur fram verð ég því miður ekki meðal keppenda á Vetrarólympíuleikunum í Cortina í febrúar. Endurhæfing eftir brot í sköflungsbeini hefur gengið vonum framar og ég vil þakka öllum sem hjálpuðu mér að keyra í gegnum krefjandi endurhæfingu með tímapressu á bakinu,“ skrifaði Hólmfríður. „Ákvörðun SKÍ olli mér verulegum vonbrigðum enda hélt ég af heilum hug að þau ætluðu að senda mig út og leyfa mér að láta á þetta reyna. Eins og ég sagði í viðtölum í gær þá ætla ég að virða þessa ákvörðun þrátt fyrir að vera ósammála. Klárlega stærstu vonbrigði ferilsins og ég mun taka næstu daga/vikur í að ákveða næstu skref,“ skrifaði Hólmfríður. Að lokum vil ég óska öllum í íslenska hópnum innilega góðs gengis, ég mun vera á staðnum og hvetja ykkur áfram,“ skrifaði Hólmfríður en bætti svo við: „Að gefnu tilefni vil ég ítreka að ég er ekki í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Ef einhver tekur þeim alvarlega þá er það ég þar sem íþróttin er mitt lifibrauð en auðvitað reyndi ég allt til að komast aftur til keppni sem fyrst,“ skrifaði Hólmfríður.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Tengdar fréttir „Hún er í afneitun“ Formaður Skíðasambands Íslands segir Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur vera í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Fótbrot hennar sé ekki gróið að fullu og samkvæmt læknisráði sé hún ekki hæf til keppni. Ákvörðunin hefði ekki átt að koma henni á óvart. 28. janúar 2026 11:03 „Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er mjög sár og svekkt út í Skíðasamband Íslands fyrir að treysta henni ekki til þáttöku á komandi Vetrarólympíuleikum. Sambandið segir ákvörðunina tekna með hennar langtíma hagsmuni til hliðsjónar. Hólmfríður segist sjálf vera best til þess fallin að meta þá. 27. janúar 2026 17:09 Elín fær sætið hennar Hólmfríðar Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir mun ekki fara á Vetrarólympíuleikana vegna meiðslanna sem hún varð fyrir í síðasta mánuði. Elín Elmarsdóttir Van Pelt fær hennar sæti og keppir fyrir Íslands hönd í svigi og stórsvigi. 27. janúar 2026 15:24 Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Hjalti stýrir Skagamönnum Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Spurs knúðu fram oddaleik Tilfinningaríkur sigur Littler Dagskráin í dag: Baráttan um þriðja sætið í Bestu deild karla Snýr aftur heim til Víkinga Sabalenka þakklát eftir sigur Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Martin valinn mikilvægastur Sjá meira
„Hún er í afneitun“ Formaður Skíðasambands Íslands segir Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur vera í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Fótbrot hennar sé ekki gróið að fullu og samkvæmt læknisráði sé hún ekki hæf til keppni. Ákvörðunin hefði ekki átt að koma henni á óvart. 28. janúar 2026 11:03
„Mjög svekkt og sár“ út í Skíðasamband Íslands Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er mjög sár og svekkt út í Skíðasamband Íslands fyrir að treysta henni ekki til þáttöku á komandi Vetrarólympíuleikum. Sambandið segir ákvörðunina tekna með hennar langtíma hagsmuni til hliðsjónar. Hólmfríður segist sjálf vera best til þess fallin að meta þá. 27. janúar 2026 17:09
Elín fær sætið hennar Hólmfríðar Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir mun ekki fara á Vetrarólympíuleikana vegna meiðslanna sem hún varð fyrir í síðasta mánuði. Elín Elmarsdóttir Van Pelt fær hennar sæti og keppir fyrir Íslands hönd í svigi og stórsvigi. 27. janúar 2026 15:24