Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. janúar 2026 21:17 Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans Eymundsson er hér í nýja húsnæði fyrirtækisins í Vík í Mýrdal, sem verður opnað í lok mars næstkomandi. Magnús Hlynur Hreiðarsson Miklar framkvæmdir eiga sér nú stað í Vík í Mýrdal enda mikið byggt á staðnum samhliða mikilli fjölgun íbúa. Eftir nokkrar vikur mun Penninn Eymundsson meðal annars opna risaverslun í þorpinu og þá er ný íbúðablokk í byggingu svo eitthvað sé nefnt.
Í dag eru íbúar Mýrdalshrepps um 1.140 talsins en þeim fjölgar stöðugt enda næga atvinnu að hafa, þó mest í kringum ferðaþjónustu. Ýmsar framkvæmdir eru í gangi en sú, sem vekur hvað mesta athygli þessa dagana er nýtt rúmlega þúsund fermetra húsnæði Pennans Eymundsson en þangað ætlar Mýrdalshreppur meðal annars að flytja skrifstofur sínar. „Það er fyrirhugað að sveitarfélagið flytji í nýtt ráðhús fljótlega á þessu ári og það verður gríðarlega jákvætt að geta boðið starfsfólki sveitarfélagsins upp á nútímalega vinnuaðstöðu og betra starfsumhverfi,” segir Einar Freyr. Hárgreiðslustofa verður líka í nýja húsinu og nú er verið að reyna að fá apótek líka í húsið. „Okkur fjölgar ört, við erum að stækka og verkefnin eru alltaf að verða margslungnari en íbúafjöldinn hefur rúmlega tvöfaldast á tíu árum og það er mikið byggt af íbúðarhúsnæði. Það er núna verið að byggja aðra blokk, bara framkvæmdir yfirstandandi núna,” segir Einar Freyr. Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps er mjög ánægður með þá miklu uppbyggingu, sem á sér stað í sveitarfélaginu.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og þið eruð að fá risa fyrirtæki, Pennann Eymundsson til ykkar, ertu ekki ánægður með það? „Jú, það er einmitt eitt af þessu, að fá fjölbreyttari verslun og þjónustu og það er bara gríðarlega jákvætt að sjá það gerast. Í dag eru íbúar Mýrdalshrepps um 1.140 talsins en þeim fjölgar stöðugt enda næga atvinnu að hafa, þó mest í kringum ferðaþjónustu. Magnús Hlynur Hreiðarsson Forstjóri Pennans Eymundsson segir að nýja verslunin verði opnuð núna í lok mars en af hverju Vík? „Hér er bara mjög mikið að gerast, það er mikil uppbygging hérna og það er auðvitað mikil ferðaþjónusta hér í gangi og við viljum vera þar sem fólkið er,” segir Ingimar Jónsson. Og þú heldur að þetta muni alveg svínvirka eða hvað? „Ég er ekki í vafa um það,” segir Ingimar brattur og hress. Nýj byggingin er við þjóðveginn þegar ekið er í gegnum þorpið í Vík.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasiða Mýrdalshrepps
Mýrdalshreppur Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira