„Finnst ekki ólíklegt að hann geri það“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. janúar 2026 12:00 Orri Freyr mætti ferskur til leiks og hlakkar til næsta verkefnis. Vísir/Sigurður Már Orri Freyr Þorkelsson átti fínasta leik er Ísland vann Ítalíu í fyrsta leik á EM. Hann er klár í frábrugðið verkefni gegn Pólverjum í dag. „
Þetta er akkúrat eins og við vildum byrja þetta. Að ná í heildsteypta frammistöðu og góðan sigur. Það gefur okkur að sjálfsögðu mikið. Ég er mjög ánægður og líka allir hinir,“ sagði Orri Freyr um fyrsta leikinn við Ítali þegar hann var tekinn tali fyrir æfingu landsliðsins í gær. Klippa: Orri léttur og klár í meira Orri Freyr spilaði fyrri hálfleik í leiknum en Bjarki Már Elísson tók við keflinu í þeim síðari í vinstra horninu. Hann segir það ekki hafa legið fyrir að þeir myndu skipta með sér hálfleikjum fyrir fram en eðlilegt sé að dreifa álaginu. „Ég bara hreinlega veit það ekki. Ég held það sé fínt að þetta rúlli aðeins. Það er strax aftur leikur á morgun, annar eftir hann og vonandi ennþá fleiri. Mér finnst þetta bara eðlilegt, að rúlla vel á liðinu eins og við gerðum í flestum stöðum í þessum leik. Ég veit ekki hvort það var ákveðið fyrir fram eða ekki,“ segir Orri. Fylgdust vel með andstæðingunum Strákarnir slökuðu þá á eftir leik og kíktu á leik Pólverja við Ungverja sem fram fór í höllinni eftir leik Íslands. Ungverjar unnu öruggan sigur í leiknum. „Þetta er bara venjulegt, maður fær sér að borða og slakar á. Svo gerum við eitthvað saman strákarnir. Í gær fylgdumst aðeins með leiknum hjá Ungverjum og Pólverjum.“ Aðspurður um hvað hann hafi helst tekið eftir í leiknum segir hann: „Pólverjarnir voru aðeins í 7 á móti 6. Þeir eru töluvert frábrugðnir Ítölunum, þeir eru með stærri og sterkari leikmenn. Þeir eru með sterkan línumann og voru að leita svolítið að honum. Þeir geta skotið frá níu metrum og eru með fína leikmenn einn á einn.“ Þekkir til þjálfarans Orri er leikmaður Porto í Portúgal og hefur marga baráttuna háð við lið Benfica. Því er stýrt af Jota Gonzalez, spænskum þjálfara pólska liðsins, sem beitir því óspart að spila með sjö leikmenn gegn sex í sókn. „Hann hefur mikið með Benfica í 7 á 6 og maður sér það sama með pólska liðið. Mér finnst ekki ólíklegt að hann geri það á móti okkur. Á miðað við það sem ég þekki af honum má gera ráð fyrir því,“ segir Orri og búast megi við töluvert fráburgðnu verkefni á við Ítalíu sem spilaði villtan leik við Ísland. „Mér þykir ólíklegt að Pólverjarnir fari í 3-3 og sömuleiðis ólíklegt að þeir spili með sex leikmenn fyrir utan. Við erum byrjaðir að skoða þá og æfing þar sem við förum yfir ákveðna þætti og annan fund í kvöld. Við ljúkum undirbúningi þannig og mætum klárir til leiks,“ segir Orri. Viðtalið má sjá í spilaranum. Leikur Íslands við Pólland hefst klukkan 17:00 og verður lýst beint hér á Vísi.
Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Stúkan: FH í miklum vandræðum Elín Klara sænskur meistari Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira