Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. janúar 2026 23:03 Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka málið fyrir. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sex til níu ára gömul. Sami maður hlaut fyrir tveimur árum þungan dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður stúlkunar en sat aldrei inni, að sérstakri ósk móðurinnar.
Málið var þingfest í dag og samkvæmt ákæru sem fréttastofa hefur fengið afhenta er manninum gefið að sök að hafa margítrekað haft önnur kynferðismök en samræði við stúlkuna, beitt hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Hann hafi nýtt sér yfirburði sína, traust hennar og trúnað sem stjúpfaðir og notfært sér það að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga. Játaði áður kynferðisbrot gegn móður stúlkunnar Talin eru upp tólf brot í fyrsta ákærulið sem öll eru sögð varða við 194. grein hegningarlaga um nauðgun. Tíu þeirra eru sögð fullframin brot og tvö tilraunir til brots. Lýsingar á brotunum hefur dómstóllinn fjarlægt úr ákærunni fyrir afhendingu. Þinghald í málinu er lokað og lýsingarnar þykja ekki eiga að koma fyrir sjónir almennings. Hann er einnig sagður hafa áreitt stúlkuna ítrekað kynferðislega með kynferðislegu tali. Með háttsemi beggja liða er hinn ákærði sagður hafa ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar endurtekið og á sérstaklega sársaukafullan, meiðandi og alvarlegan hátt. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu hlaut sami maður fimm ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tveimur árum síðan. Hann var í febrúar ársins 2023 sakfelldur fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot gegn sambýliskonu sinni og barnsmóður sem er sömuleiðis móðir stjúpdótturinnar. Maðurinn játaði þá brot sín skýlaust samkvæmt öllum ákæruliðum. Hann lagði fram bréf til dómsins við dómtöku málsins þar sem hann lýsti sig fullan eftirsjár og sagðist iðrast alls þess sem hann hafði gert á hlut barnsmóður sinnar. Hann vildi axla ábyrgð á gjörðum sínum og leita sér aðstoðar við að breyta hegðun sinni. Traust til refsivörslukerfisins vó þyngra Sambýliskona hans ávarpaði einnig dóminn þann dag að eigin ósk og gerði grein fyrir þeirri afstöðu sinni að hegðun mannsins hafi breyst og að hann hafi ekki beitt hana ofbeldi frá því að þær árásir sem dómurinn lýsir áttu sér stað. Hann væri orðinn nærgætinn, góður faðir og góður maki. Hún lýsti því sömuleiðis hvað hún væri háð manninum fjárhagslega og vegna umönnunar barnanna. Í ljósi þessa fór hún fram á það fyrir dómi að manninum yrði ekki gerð refsing sem bitni á velferð hennar og barnanna og bað um að honum yrði ekki gert að sæta fangelsisvist. Dómurinn féllst á þessa bón konunnar þrátt fyrir að tekið sé fram í dómnum að brot hins ákærða hafi verið gróf, margítrekuð og í það minnsta í eitt skipti var brot framið í nærveru barns yngra en fimmtán ára. Sjónarmið dómsins um að brotaþoli í máli eigi að geta lagt traust sitt á refsivörslukerfið og að mikilvægt sé að draga ekki úr vilja brotaþola til að kæra brot sem þeir hafa orðið fyrir vó þyngra. Maðurinn hlaut að lokum skilorðsbundinn fimm ára dóm. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að maðurinn hafi játað brot sín í yfirheyrslu en hvort að þær játningar stemmi við lýsingar ákæruliðanna liggur ekki fyrir.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Sjá meira