Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2025 13:32 Það vantar ekki starfsfólkið hjá langstærsta sérsambandinu í íslenskum íþróttum. Myndin tengist fréttinni ekki beint en hún er tekin fyrir landsleik hjá Íslandi. Getty/Alex Nicodim Knattspyrnusamband Íslands taldi ástæðu fyrir því að útskýra betur starfsmannahald sambandsins í frétt á heimasíðu þess. Þar kemur í ljós að Ísland er nálægt botninum þegar kemur að evrópsku knattspyrnusamböndunum. „
Reglulega kviknar umræða innan knattspyrnuhreyfingarinnar um umfang starfsemi KSÍ og þá helst um verkefni skrifstofu og fjölda starfsfólks,“ byrjar fréttin hjá KSÍ. „Vegna þessa vill KSÍ vekja athygli á því að í mannauðsrannsókn sem UEFA framkvæmdi árið 2024 (UEFA Human Resources Benchmarking Report) kom m.a. fram að KSÍ væri í 53. sæti af öllum 55 knattspyrnusamböndum innan UEFA þegar talinn væri fjöldi starfsfólks – sem sagt, knattspyrnusambönd aðeins tveggja aðildarlanda UEFA eru með færri starfsmenn en KSÍ,“ segir í fréttinni. Fréttaskrifari útskýrir frekar starfsmannaveltu Knattspyrnusambands Íslands en á skrifstofu sambandsins og Laugardalsvelli eru í desember 2025 alls 37,8 stöðugildi. „Á skrifstofunni, að meðtöldum formanni KSÍ og landsliðsþjálfurum, eru 31,8 föst stöðugildi (þar af hafa landsliðsþjálfarar 9,6 stöðugildi). Þessu til viðbótar eru fjögur stöðugildi sem eru fjármögnuð með styrkjum frá UEFA og FIFA - eitt tímabundið stöðugildi í innleiðingu á nýju mótakerfi (styrkur meðan á innleiðingu stendur) og þrjú stöðugildi í sérverkefni á knattspyrnusviði (styrkur meðan verkefni er í gangi). Styrkir í þessum tilfellum eru eyrnamerktir einmitt þessum tilteknu verkefnum/stöðugildum og fengjust ekki ef þessi verkefni væri ekki í gangi,“ segir í fréttinni. Það kemur einnig fram að það eru tvö stöðugildi á Laugardalsvelli sem sjá um viðhald vallarins sem og mannvirkisins í samstarfi við Reykjavíkurborg á grundvelli þjónustu- og rekstrarsamnings milli aðila. Þetta gera alls 37,8 stöðugildi en það er tekið sérstaklega fram að sex þeirra eru ekki fjármögnuð af Knattspyrnusambandi Íslands. Fréttaskrifari bætir einnig við samanburði við frændur okkar Færeyinga. „Til fróðleiks og samanburðar má nefna að starfsmenn færeyska knattspyrnusambandsins nú í desember 2025 eru 35 alls, að meðtöldum landsliðsþjálfurum, og þar af tvö stöðugildi sem bera ábyrgð á umsjón og viðhaldi skrifstofuaðstöðu. Til viðbótar þessum 35 stöðugildum eru fjórir starfsmenn sveitarfélagsins í Þórshöfn sem bera ábyrgð á viðhaldi þjóðarleikvangsins í Færeyjum og sinna honum samhliða fjórum öðrum leikvöngum sem sveitarfélagið rekur,“ segir í fréttinni.
KSÍ Fótbolti Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira