Forstjórar Volvo og Polestar vara við frestun Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. desember 2025 08:40 Håkan Samuelsson er forstjóri Volvo. Getty/Kevork Djansezian Forsvarsmenn sænsku bifreiðaframleiðendanna Volvo og Polestar hvetja yfirvöld í Brussel til að standa við bann gegn framleiðslu bensín- og dísil bíla, sem á að taka gildi 2035.
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa þrýst á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að fresta gildistöku bannsins, á þeirri forsendu að neytendur séu ekki enn reiðubúnir til að skipta alfarið yfir í rafbíla. Forstjórar Volvo og Polestar segja frestun hins vegar aðeins myndu verða til þess að veita Kínverjum aukið forskot. Orkuskipti í bílaiðnaðinum verði ekki umflúin. „Ef Evrópa tekur ekki forystuna í þessum umbreytingum, þá getum við verið viss um að önnur ríki munu gera það fyrir okkur,“ segir Michael Lohscheller, forstjóri Polestar, sem er Þjóðverji og var áður yfirmaður hjá Volkswagen og Opel. Lohscheller og Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo, eru á einu máli um að frestun muni aðeins skila sér í auknu forskoti Kínverja. Samuelsson líkir mótþróa bílaiðnaðarins nú við það þegar menn settu sig upp á móti notkun hvarfakúta, til að draga úr mengun, og bílbelta. Ef notkun þeirra hefði ekki verið bundin í lög væru eflaust margar bifreiðar án þeirra. Svíarnir benda á að frestun muni senda þau skilaboð til neytenda að þeir þurfi ekki að kaupa sér rafmagnsbíl og þannig verði staðan áfram sú sama og hún er núna. Lohscheller segir Þjóðverja of upptekna af því að halda í það sem er, í stað þess að horfa til framtíðar, líkt og menn séu að gera í Kína og Bandaríkjunum. „Í Kína og Bandaríkjunum er það: Hver er næsta hugmyndin? Hvað er næsta verkefnið? Hvaða fyrirtæki ætlum við að prófa að stofna næst? Það er stór munur. Það er algjörlega annað hugarfar.“ Guardian fjallar ítarlega um málið.
Svíþjóð Þýskaland Orkuskipti Evrópusambandið Bílar Vistvænir bílar Samgöngur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira