Krefjast svara um fyrirskipanir Hegseth varðandi bátaárásirnar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. desember 2025 07:50 Repúblikaninn Mike Turner er meðal þeirra sem krefst skýrari svara frá Pentagon. Getty/Anadolu/Nathan Posner Þingmenn bæði Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins krefjast nú svara við því hvort að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafi gefið fyrirskipun um að skjóta alla um borð í bátum sem herinn hefur grandað á Karíbahafi.
Washington Post greindi frá því á föstudag að Hegseth hefði gefið munnlega skipun þess efnis, sem hefði leitt til þess að gerðar voru endurteknar árásir á skotmörk til að drepa þá sem komust lífs af í fyrri árásum. Bandaríkjastjórn hefur sætt harðri gagnrýni fyrir árásir sínar á bátana, sem hún segir hafa staðið í fíkniefnaflutningum. Stjórnvöld hafa ekki séð ástæðu til að leggja fram nein sönnunargögn þess efnis. Ef rétt reynist er mögulega um stríðsglæp að ræða. „Ef þetta átti sér stað, þá er það augljóslega mjög alvarlegt, og ég er sammála því að það væri ólöglegur gjörningur,“ sagði Repúblikaninn Mike Turner, fyrrverandi formaður leyniþjónustunefndar fulltrúadeildarinnar, á CBS. Tim Kaine og Mark Kelly, öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins, tóku í sama streng í sjónvarpsviðtölum um helgina. Nefndir bæði fulltrúadeildarinnar og öldungadeildarinnar sem hafa eftirlit með hernum hyggjast nú krefjast ítarlegri upplýsinga um aðgerðir stjórnarinnar gegn bátunum á Karíbahafi. Bæði Washington Post og Intercept hafa greint frá því að gerðar hafi verið árásir í kjölfar þeirra sem grönduðu bátunum til að drepa eftirlifendur í sjónum. Hegseth hefur varið framgöngu hersins en neitaði því ekki beint að hafa gefið fyrirskipunina. Donald Trump Bandaríkjaforseti lýst yfir trausti á ráðherranum. New York Times greindi frá.
Bandaríkin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira