Tilfinningar í þingsal og Inga brosir hringinn Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 12. nóvember 2025 21:00 Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var lögfestur á Alþingi í dag með atkvæðum þingmanna allra flokka á Alþingi nema Miðflokksins sem sátu hjá. Margir þingmenn stigu í pontu til að gera grein fyrir atkvæði sínu fulltrúar úr röðum hagsmunasamtaka fatlaðs fólks fjölmenntu á þingpallana til að fylgjast með atkvæðagreiðslunni og fögnuðu þegar frumvarpið varð að lögum.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, komst við í pontu þingsins þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu en sjálf hefur hún lengi lagt áherslu á að málið verði að lögum. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, lýsti því að flokkurinn kysi að sitja hjá, meðal annars á þeim forsendum að réttindin sem um ræði séu þegar tryggð í stjórnarskrá. „Vegna vanbúnings þessa máls fyrir þinginu þá því miður get ég ekki greitt þessu máli atkvæði, en leggst ekki gegn því. En því miður þykir mér það leitt að geta ekki stutt málið eins og það er úr garði gert,“ sagði Sigríður meðal annars. Kallað eftir kostnaðarmati og flutningi aftur til ríkisins Þingmenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins studdu málið, en lýstu þó óánægju sinni með að ekki hafi verið framkvæmt kostnaðarmat vegna málsins líkt og sveitarfélögin hafi kallað eftir, en það eru sveitarfélögin sem bera ábyrgð á að veita helstu þjónustu við fatlað fólk. Sjálfstæðismenn hörmuðu að ekki hafi verið fallist á breytingartillögu þeirra um að samningurinn yrði samþykktur með ákvæði um endurskoðun að tveimur árum liðnum. Þá hefur flokkurinn boðað þingsályktunartillögu strax í næstu viku þar sem lagt verði til að ábyrgð á málaflokki fatlaðs fólks verði aftur flutt til ríkisins frá sveitarfélögunum sem hafi takmarkaða burði til að sinna þeim skyldum sem þeim er falið. Gleðjast yfir því að baráttumál sé orðið að lögum Líkt og áður segir var hópur fólks úr röðum hagsmunasamtaka fatlaðs fólks mætt á þingpallana til að fylgjast með atkvæðagreiðslunni og fögnuðu þegar frumvarpið varð að lögum. „Mér líður vel, ég er næstum því í tilfinningalegu uppnámi, þetta er búið að vera baráttumál Þroskahjálpar árum saman og við bara fögnum því mjög að loksins er þetta í höfn,“ segir Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, tekur í svipaðan streng. „Það má líka óska þingmönnum sem lögðu hart að sér að koma þessu máli í gegn innilega til hamingju, að standa með fötluðu fólki. Og nú erum við líka orðin fyrirmyndarþjóð fyrir aðrar Norðurlandaþjóðir þannig vonandi getum við fengið þau í lið með okkur líka,“ segir Alma. Sjálf er Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, himinlifandi með áfangann. „Mér líður bara ótrúlega vel. Ég er breisk, ég er þakklát. Maður er ekki alveg búinn að lenda, þetta er búin að vera svo mikil barátta,“ segir Inga. Það þarf væntanlega að tryggja líka að hægt sé að standa við það sem þarna er kveðið á um? „Í rauninni er búið að tryggja öll þessi réttindi með stjórnarskránni okkar sem er æðst allra réttarheimilda. Þannig ég hef ekki áhyggjur af því og samskipti okkar, ríkis og sveitarfélaga, hafa farið mjög svo batnandi og við erum orðin mjög náin í öllum okkar samskiptum. Og ég efast ekki um það að við munum tryggja þau réttindi sem samningur Sameinuðu þjóðanna boðar hér í dag með lögfestingu,“ svarar Inga.
Alþingi Málefni fatlaðs fólks Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira