Kristrún meðal hundrað rísandi stjarna Time Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. september 2025 13:52 Kristrún Frostadóttir kom eins og storsmveipur inn í íslensk stjórnmál árið 2021. Vísir/Anton Kristrún Frostadóttir er á lista tímaritsins Time yfir hundrað áhrifamestu rísandi stjörnur heims í dag. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, fer fögrum orðum um Kristrúnu og segir hana alvarlegan, opinn og uppbyggjandi leiðtoga með hagfræðiheila.
Frá 1999 hefur Time árlega tekið saman lista yfir hundrað áhrifamestu einstaklinga heims en síðustu sex ár hefur tímaritið einnig tekið saman „Time 100 Next“-lista yfir rísandi stjörnur. Þekktir einstaklingar, sem þekkja viðkomandi eða starfa í sama geira, skrifa síðan stutta lýsingu á hverri stjörnu. Listinn skiptist í fimm flokka: listamenn, undur, frumkvöðla, leiðtoga og talsmenn. Meðal listamanna eru leikarar á borð við Tramell Tillman, Johnathan Bailey og Monicu Barbaro, meðal undra eru Superman-leikarinn David Corenswet og tónlistarkonan Tate McRae og meðal frumkvöðla er fótboltamaðurinn Lamine Yamal. Karoline Leavitt, Erika Kirk og Ruben Gallego. Kristrún er í flokki leiðtoga ásamt nöfnum á borð við Karoline Leavitt, talskonu Hvíta hússins; Eriku Kirk, ekkju Charlie Kirk; Ruben Gallego, þingmanni Demókrata og Emmu Theofelus, upplýsinga- og samskiptaráðherra Namibíu. Hagfræðiheili sem gerir fjármálaráðherra taugaveiklaða Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, skrifar lýsingu á Kristrúnu þar sem hún hrósar henni óspart fyrir leiðtogahæfileika sína. „Með djarfar hugmyndir, auga fyrir pragmatískar lausnir og hagfræðiheila sem gerir jafnvel fjármálaráðherra taugaveiklaða - hvort sem hún er að skipuleggja umbætur á fiskveiðistjórnunarkerfinu (tilkomumikil setning í hvaða norræna tunugmáli sem er) eða sjálfbært samfélag með efnahagslegum vexti - er Kristrún Frostadóttir einbeitt og óvenjuleg viljug til að ögra gömlum gildum,“ skrifar Mette í lýsingunni. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.Getty „Kristrún tók við embætti forsætisráðherra síðastliðinn desember til að færa Ísland fram á við, ekki bara stjórna því. Með reynslu frá Wall Street til Reykjavíkur, þá kom hún inn í stjórnmál með skýrt markmið: að blanda saman félagslegu réttlæti með efnahagslegu raunsæi. Að stjórna með metnaði, ekki ótta,“ skrifar hún jafnframt. „Gegnum samtöl mín við Kristrúnu hef ég kynnst henni sem alvarlegri, opinni og uppbyggilegri, jafnvel þegar við erum ekki sammála. En við erum vissulega sammála um þetta: Ísland verður að standa sterkt, meðal norrænna þjóða, í NATO og á norðurslóðum.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Danmörk Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira