Reikna með fimmtán milljarða halla á næsta ári Árni Sæberg skrifar 8. september 2025 09:12 Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Anton Brink Reiknað er með fimmtán milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs á næsta ári í fjárlögum fyrir árið 2026. Áður hafði verið gert ráð fyrir miklum mun meiri halla, upp á 26 milljarða króna.
Þetta kom fram í upphafi kynningar Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í ráðuneytinu í morgun. Kynninguna má sjá fréttinni hér að neðan: Daði Már sagði að helsta áhersla fjárlaganna væri að ná niður vöxtum. Ríkissjóður verði að aðstoða Seðlabanka Íslands við að ná verðbólgumarkmiði með hagræðingu og því myndi hann kynna aðhaldssöm fjárlög. Hagræðing væri þegar farin að bera ávöxt, enda væri nú gert ráð fyrir fimmtán milljarða króna halla á næsta ári í stað 26 milljarða króna halla. Vaxtalækkun stóra hagsmunamál heimila og fyrirtækja Hann sagði að hlutdeild ríkissins væri að minnka sem hluti af heildarhagkerfinu. Rekstrarútgjöld ríkisins ættu ekki að hækka sem hlutfall af landsframleiðslu heldur lækka. Þessi fjárlög sagði Daði eiga að stuðla að lækkun vaxta sem heimili og fyrirtæki muni njóta góðs af. „Þetta er stóra hagsmunamál bæði heimila og fyrirtækja í landinu og þess vegna stóra áherslumál ríkisstjórnarinnar,“ sagði Daði. Senda komandi kynslóðum ekki reikninginn Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, þar sem fjárlagafrumvarpið er kynnt, segir að í frumvarpinu sé forgangsraðað í þágu verðmætasköpunar, nauðsynlegrar innviðafjárfestingar, heilbrigðis og öryggis. Stór þáttur í þeirri vegferð sé hagræðing í rekstri ríkisins en samkvæmt fjárlagfrumvarpinu muni sértækar umbætur og hagræðing nema um þrettán milljörðum króna. „Forgangsmál ríkisstjórnarinnar er að ná stjórn á fjármálum ríkisins, greiða niður skuldir og binda enda á hallarekstur ríkissjóðs árið 2027. Þessi ríkisstjórn mun ekki eyða um efni fram en hún mun heldur ekki halda mikilvægum kerfum í fjársvelti. Það krefst ábyrgðar og hagsýni en við munum standa vörð um lífsgæði almennings án þess að senda komandi kynslóðum reikninginn,“ er haft eftir Daða Má. Útgjöld ekki aukin umfram verðmætasköpunarvöxt Þá segir að með innleiðingu svokallaðrar stöðugleikareglu hafi varanlegar skorður verið settar við ósjálfbærum útgjaldavexti. Á grundvelli hennar verði útgjöld ekki lengur aukin umfram vöxt verðmætasköpunar og komið hafi verið í veg fyrir að tímabundnum tekjum ríkisins sé eytt í varanleg útgjöld. Útgjaldavöxtur undanfarinna ára hafi valdið sveiflum og ýtt undir verðbólgu. Tekjur ríkissjóðs séu á hinn bóginn svipað miklar og síðast þegar ríkissjóður var rekinn með afgangi. Þess vegna sé einkum lögð áhersla á að ná stjórn á ríkisútgjöldum, svo sem með hagræðingu, einföldun og aukinni skilvirkni, en gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs haldist stöðugar. „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til umbóta og hagræðingar eru þegar farnar að skila sér en afkoma ríkissjóðs samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er 11 milljörðum króna betri en lagt var upp með í fjármálaáætlun.“ Skuldir ríkisins séu umtalsvert hærri en í nágrannaríkjum okkar og vaxtakostnaðurinn hafi bitnað á mikilvægum verkefnum á borð við uppbyggingu vega, raforkukerfisins og annarra innviða. Að greiða þær niður snúist um almannahagsmuni enda sé vaxtakostnaðurinn hærri en framlög til margra mikilvægra málaflokka. Stjórnarráðið Sjúkrahúsið á Akureyri, aukið fé í framhaldsskóla og stuðningur við verðbólgumarkmið Loks segir að með tiltekt í ríkisfjármálunum hafi þegar skapast svigrúm til þess að mæta þeim brýnustu áskorunum sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Nýjum útgjöldum í fjárlagafrumvarpinu sé forgangsraðað til verkefna sem stuðla að öryggi fólks, svo sem í heilbrigðiskerfinu, í samgöngum og víðar. Á árinu 2026 verði þremur milljörðum króna varið í uppbyggingu Sjúkrahússins á Akureyri og yfir 100 nýjum hjúkrunarrýmum verði komið á fót víðs vegar um landið. Þá sé fjármunum varið í stækkun réttar- og öryggisdeildarinnar á Kleppi um helming, fjölgun ýmissa meðferðarúrræða vegna fíknivanda og varanlega styrkingu geðþjónustu barna og aldraðra. Til að stuðla enn frekar að auknu öryggi sé fjármagni veitt í fimmtíu ný stöðugildi innan lögreglunnar, eflingu Landhelgisgæslunnar og á sviði fangelsismála. Ný öryggisvistun fyrir einstaklinga sem ekki eru sakhæfir verði sett á fót, snjóflóðavarnir efldar og brottfararmiðstöð opnuð. Ríkisstjórnin hafi einnig fjármagnað aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum, meðal annars með hækkun framlaga til Fæðingarorlofssjóðs, uppbyggingu verknáms, auknu fé til framhaldsskólanna og eflingu sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Þá hafi ríkisstjórnin sett aukinn kraft í að bæta lífsgæði þeirra sem mest þurfa á stuðningi að halda, þar með talið með hækkun á almennu frítekjumarki ellilífeyrisþega, hækkun á aldursviðbót til örorkulífeyrisþega og hærri framlögum til að koma til móts við fjölgun endurhæfingarlífeyrisþega. Sterk efnahagsstjórn skili sér þó fyrst og fremst í bættum hag heimila með því að styðja við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands og skapa þannig svigrúm fyrir lækkun vaxta. Frá því í október 2024 hafi vaxtakostnaður þegar lækkað um ríflega 500 þúsund krónur á ári af þrjátíu milljóna króna jafngreiðsluláni. „Aðhald í ríkisrekstrinum, umbætur og hagræðing eru viðvarandi verkefni. Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 slær tóninn fyrir það sem koma skal. Það felur í sér varfærni og ekki af ástæðulausu. Tilgangur fjárlaganna er, þegar öllu er á botninn hvolft, að tryggja öryggi og öfluga þjónustu við borgarana. Markmiðið um að skila afgangi gengur ekki í berhögg við þetta heldur er það sett fram til að tryggja að ríkið geti stuðlað að bættum lífskjörum almennings án þess að senda reikninginn til kynslóða framtíðar.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Rekstur hins opinbera Fjárlagafrumvarp 2026 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira