Líklega snúin staða sama hvernig fer í Noregi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 7. september 2025 21:30 Jonas Gahr Störe er sitjandi forsætisráðherra og formaður Verkamannaflokksins. Getty Norðmenn ganga að kjörborðinu á morgun en um helmingur kjósenda hefur þegar greitt atkvæði utan kjörfundar. Líklegt er að flókin stjórnarmyndun taki við, sama hvort vinstri- eða hægriflokkar hafi betur.
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er Rauða blokk mið- og vinstriflokka í Noregi með forskot á þá bláu í þingkosningunum sem fara í hönd. TV2 reiknar það þannig að Rauðir fengju 91 þingmann en bláir 77. Af þeim eru Verkamannaflokkurinn og Framfaraflokkurinn stærstir. Verkamannaflokkur Jonas Gahr Störe leiddi síðustu ríkisstjórn með Miðflokknum, gömlum bændaflokki á miðju norkskra stjórnmála. Ýmislegt hefur gengið á síðasta kjörtímabil og sleit Miðflokkurinn ríkisstjórnarsamstarfi í janúar vegna deilna um innleiðingu á fjórða orkupakka Evrópusambandsins. Svona er staðan samkvæmt nýjustu skoðanakönnun.Vísir/Grafík Staðan eftir kosningar gæti orðið snúin og Verkamannaflokkurinn þurft að semja við allt að fjóra minni flokka um myndun ríkisstjórnar. Hafi hægri flokkarnir betur er líklegt að deilur um forsætisráðherrastólinn taki við. Íhaldsflokkur Ernu Solberg, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur sögulega leitt borgaralegar ríkisstjórnir en Framfaraflokkurinn undir forystu Sylvi Listhaug mælist með mun meira fylgi. Báðar hafa gert tilkall til forsætisráðuneytisins. Efnahagsmálin eru efst á baugi hjá kjósendum vegna dýrtíðar og ójöfnuðs. Raforkuverð hefur meðal annars verið í hæstu hæðum og hefur komið til tals að hætta útflutningi rafmagns til Danmerkur, til að reyna að lækka raforkuverð til norsks almennings. Mikið hefur verið þrætt um auðlegðarskatt þar að auki. Vísir/Grafík Um helmingur kjósenda hefur þegar greitt atkvæði utan kjörfundar, eða tæpar tvær milljónir manna, sem er stórt stökk frá kosningunum 2021. Kjörstaðir loka annað kvöld klukkan níu, að norskum tíma og búast má við fyrstu niðurstöðum fljótlega eftir það.
Noregur Þingkosningar í Noregi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira