Falin myndavél á þingklósettinu og ósæmilegar myndir af börnum Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. ágúst 2025 08:15 Skoski þingmaðurinn Colin Smyth er í töluverðu klandri eftir að lögreglan greip hann með klúrar myndir af börnum og hann reyndist hafa komið falinni myndavél fyrir á klósetti skoska þingsins. Getty Skoski þingmaðurinn Colin Smyth hefur verið ákærður fyrir að koma falinni myndavél fyrir á salerni í skoska þinginu. Fyrr í mánuðinum var Smyth handtekinn fyrir að vera með ósæmilegt myndefni af börnum í fórum sér.
Bæði BBC og The Guardian greina frá máli Smyth. Hinn 52 ára Smyth, sem hefur verið fulltrúi Suður-Skotlands á skoska þinginu frá 2016, var handtekinn í bænum Dumfries 5. ágúst fyrir að vera með ósæmilegt myndefni af börnum í fórum sér. Skoski verkamannaflokkurinn leysti hann í kjölfarið frá störfum en hann er skráður sem sjálfstæður þingmaður í dag. Ekki liggur fyrir hvort brottreksturinn er tímabundinn eða varanlegur. Í gær var Smyth síðar ákærður fyrir ólöglegar upptökur á salerni skoska þingsins. Talsmaður skoska þingsins sagði að í ljós rannsóknarinnar hefði skoska þingið „tekið þá ákvörðun að óvirkja aðgangskort Colins Smyth að þinginu“. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir um meinta glæpi Smyth eða framgang málsins. Sýnir samstarfsvilja Smyth gaf sjálfur frá sér tilkynningu í síðustu viku til að bregðast við málinu. „Þessir atburðir eru áfall og þetta er mjög stressandi tími. Ég sýni augljóslega samstarfsvilja í tengslum við allar spurningar og vona að hægt sé að leysa málið í hasti,“ sagði hann í yfirlýsingunni. „Ég get ekki tjáð mig frekar að svo stöddu og í millitíðinni vil ég biðja að friðhelgi fjölskyldu minnar og vina verði virt.“
Skotland Kynferðisofbeldi Bretland Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira