Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Play 6. júní 2025 15:35 Í Háholti í Mosfellsbæ heyrðu viðskiptavinir mikil fagnaðarlæti þegar mæðgur fengu frítt flug fyrir tvo til hvaða áfangastaðar sem er innan leiðakerfis PLAY. Hvítasunnuhelgin er ein stærsta ferðahelgi ársins þar sem landsmenn eru á faraldsfæti ýmist innanlands eða erlendis. Það er því nokkuð gefið að það verði mikill erill á stöðvum N1 víða um land og hjá flugfélaginu Play en fyrirtækin ákváðu af því tilefni að efna til risastórs ferðaleiks þar sem viðskiptavinir á stöðvum N1 um allt land geta unnið fjölda vinninga.
Þar á meðal mun einn heppinn vinna Gullna miðann sem tryggir honum frí flug með Play í heilt ár. Fyrir utan vinninginn stóra, þar sem boðið er upp á frítt flug með Play í heilt ár, verður einnig hægt að vinna flug fyrir tvo á áfangastað PLAY ásamt gjafabréfum frá flugfélaginu. „Við vildum setja sumarið í smá gír með leik sem bætir smá spenningi við heimsókn til okkar. Það verður nóg um að vera á stöðvunum okkar um helgina og í raun allt sumar. Við vonum að þetta skemmtilega samstarf við PLAY fái fólk til að stoppa, kíkja inn og versla og hver veit, jafnvel fljúga í sólina,” segir Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1. „Samstarfið við PLAY kom alveg náttúrulega, bæði fyrirtækin tengjast ferðalögum og við vildum gera eitthvað óvænt saman. Að litirnir okkar skuli báðir vera rauðir? Það er bara punkturinn yfir i-ið.“ N1 er með 28 þjónustustöðvar víðsvegar um landið og ljóst að fagnaðarlæti munu brjótast út í hverjum landshluta þegar sigurvegarar, sem valdir verða af handahófi, fá vinninga afhenta. Flugfélagið PLAY er með heila 16 sólarlandaáfangastaði í leiðakerfi sínu, þar á meðal átta á Spáni, fjóra í Portúgal og að auki Agadir og Marrakesh í Marokkó, Split í Króatíu og Antalya í Tyrklandi. Fjörið hófst í morgun á Ísafirði Vinningshafar á Ísafirði fengu gjafabréf frá Play. Nú þegar hafa þrír vinningar verið gefnir en Ísafirði fékk par afhent 30.000 króna gjafabréf. Parið var að vonum ánægt með vinninginn og sagði að hann hefði sannarlega gert góðan dag betri á örskotsstundu. Í Borgarnesi var það fjögurra manna fjölskylda sem datt í lukkupottinn rétt eftir hádegi. Þau fengu 50.000 króna ávísun afhenta og var því fagnað með breiðum brosum og miklum samræðum um hvert skyldi halda með PLAY. Vinningum Play og N1 rignir yfir heppna vegfarendur. Í Borgarnesi var það fjögurra manna fjölskylda sem datt í lukkupottinn rétt eftir hádegi og vann gjafabréf frá Play. Í Háholti í Mosfellsbæ heyrðu viðskiptavinir mikil fagnaðarlæti þegar mæðgur fengu frítt flug fyrir tvo til hvaða áfangastaðar sem er innan leiðakerfis PLAY. Það voru áhafnarmeðlimir Play sem afhentu mæðgunum vinninginn góð en þær áttu sko aldeilis ekki von á þessu þegar þær lögðu út í daginn og brugðu sér inn á N1. „Ég hélt fyrst að þetta væri eitthvað grín,” sagði dóttirin inn á milli hláturs þeirra mæðgna og ljóst að þær eiga gott ferðalag í vændum. Það er því engum vafa undirorpið að ferðaleikur N1 og PLAY hefur glatt viðskiptavini um land allt í dag en þetta er einungis byrjunin, því vinningar verða gefnir alla hvítasunnuhelgina, þar á meðal Gullni miðinn sem tryggir einum heppnum frí flug með PLAY í heilt ár.
Play Ferðalög Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira