Sport

Dag­skráin: Úr­slita­leikur um sæti í Bónus deild karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Adama Darboe hefur spilað með Grindavík, Stjörnunni og KR í úrvalsdeildinni og gæti hjálpað Ármanni upp í úrvalsdeildina í kvöld.
Adama Darboe hefur spilað með Grindavík, Stjörnunni og KR í úrvalsdeildinni og gæti hjálpað Ármanni upp í úrvalsdeildina í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Það er svakalegur oddaleikur sem á sviðið í kvöld en þar verður spilaður hreinn úrslitaleikur um farseðil upp i úrvalsdeild karla í körfubolta.

Hamarsmenn jöfnuðu metin í 2-2 með sigri í síðasta leik og mæta í Laugardalshöllina í kvöld þar sem Ármenningar hafa verið afar sterkir á þessari leiktíð.

Ármenningar hafa unnið átta heimaleiki í röð þar af alla heimaleiki sína í úrslitakeppninni og með sigri komast þeir upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 44 ár eða frá árinu 1981. Hamarsmenn geta aftur á móti komist strax upp aftur eftir fall úr úrvalsdeildinni í fyrra.

Úrslitakeppni NBA er í fullu fjöri en nú er komið fram í undanúrslit deildanna.

Mörg af bestu liðum deildarkeppninnar hafa ekki byrjað vel sem ýtir enn undir spennuna og það er von á einhverjum óvæntum liðum í úrslitaeinvígi deildanna.

Strákarnir í Lögmáli leiksins ætla að fara vel yfir viðburðaríka viku í NBA.

Þetta eru líka umspilsdagar í ensku neðri deildunum og í kvöld verður sýnt beint frá seinni leik Sheffield United og Bristol City í umspili ensku C-deildarinnar. Sheffield United er í mjög góðum málum eftir fyrri leikinn sem liðið vann 3-0.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá oddaleik Ármanns og Hamars í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 20.00 hefst þátturinn Lögmál leiksins þar sem farið er yfir vikuna í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta.

Vodafone Sport

Klukkan 18.50 hefst útsending frá seinni undanúrslitaleik Sheffield United og Bristol City í umspili ensku C-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×