„Þetta er risastór áfangi og gleðitíðindi fyrir Kópavogsbæ“ Árni Sæberg skrifar 4. apríl 2025 15:17 Hinn 28. maí 2018 var Kópavogsbæ birt stefna af hálfu Þorsteins heitins Hjaltested, þáverandi ábúanda jarðarinnar Vatnsenda í Kópavogi. Því máli er nú endanlega lokið. Það mál var aðeins eitt fjölmargra sem höfðuð hafa verið vegna Vatnsenda. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Magnúsar Péturs Hjaltested um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í Vatnsendamálinu svokallaða. Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms um að Kópavogi bæri að greiða Magnúsi Pétri 1,4 milljarða króna. Dómsmálinu er því endanlega lokið og í fyrsta sinn í fjölda ára er ekkert mál sem tengist eignarnámi Kópavogsbæjar í Vatnsenda fyrir dómstólum.
Greint var frá því í byrjun febrúar að Landsréttur hefði snúið dómi héraðsdóms, sem dæmdi Kópavog til að greiða Magnúsi Pétri 1,4 milljarða króna, við. Magnús Pétur krafðist alls 5,6 milljarða króna í málinu, sem faðir hans heitinn höfðaði upphaflega árið 2018. Dómur Landsréttar er reifaður í fréttinni hér að neðan: Óhætt er að fullyrða að deilur um jörðina Vatnsenda hafi leitt af sér ein umfangsmestu málaferli íslenskrar réttarsögu. Jörðin náði upphaflega yfir gríðarlegt landflæmi á höfuðborgarsvæðinu, eða allt frá Seltjarnarnesi upp að Bláfjöllum. Deilurnar hafa staðið yfir í rúmlega fimmtíu ár og hafa leitt af sér fjöldan allan af dómum, þar af marga sem taldir eru meðal þeirra mikilvægustu í íslenskum eignarrétti. Risastór áfangi Í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ segir að beiðni um að áfrýja dómi Landsréttar í Vatnsendamáli hafi í dag verið hafnað af Hæstarétti. Það þýði að Vatnsendamálinu sé endanlega lokið og nú séu engin mál fyrir dómsstólum sem tengjast eignarnámi Kópavogsbæjar í Vatnsenda. „Þetta er risastór áfangi og gleðitíðindi fyrir Kópavogsbæ. Allri óvissu er nú lokið með þessari niðurstöðu sem er mjög jákvætt. Kópavogsbær þarf ekki lengur að gera ráð fyrir fjárkröfum vegna Vatnsendamálsins í ársreikningi, en gert hefur verið ráð fyrir þeim frá upphafi í bókum bæjarins,“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs. Ástæðan liggur ekki fyrir Ákvörðun Hæstaréttar í málinu hefur ekki verið birt og Kópavogur tíundar forsendur réttarins ekki í tilkynningu sinni. Því liggur ekki fyrir hvers vegna beiðninni var hafnað eða á hvaða málsástæðum hún var byggð. Til þess að fá leyfi Hæstaréttar fyrir áfrýjun þarf mál að uppfylla ýmis skilyrði laga um meðferð einkamála. Þar segir að við mat á því hvort fallist verði á beiðni um áfrýjunarleyfi skuli líta til þess hvort úrslit máls hafi verulegt almennt gildi eða varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni þess sem leitar leyfis. Hér má geta þess að Hæstiréttur hefur talið hærri fjárhæðir en 1,4 milljarða króna ekki varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni leyfisbeiðanda. Þá geti Hæstiréttur veitt slíkt leyfi ef ástæða er til að ætla að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur að formi eða efni.
Deilur um Vatnsendaland Kópavogur Dómsmál Jarða- og lóðamál Tengdar fréttir Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Landsréttur hefur snúið dómi héraðsdóms, sem dæmdi Kópavog til að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested 1,4 milljarða króna, við. Magnús Pétur krafðist alls 5,6 milljarða króna í málinu, sem faðir hans heitinn höfðaði upphaflega. 6. febrúar 2025 17:15 Ekki tekið ákvörðun um að áfrýja í Vatnsendamáli Kópavogsbær hefur ekki tekið ákvörðun um að áfrýja ákvörðun Héraðsdóms Reykjaness sem gert hefur bænum að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested, syni Þorsteins Hjaltested heitins, 1,4 milljarða króna ásamt vöxtum í deilum um Vatnsendaland. Bærinn hefur undanfarin ár verið með varúðarfærslur vegna málsins í bókum sínum. 7. júlí 2023 16:16 Staðfestu sýknu Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu Hæstiréttur staðfesti í dag sýknu Kópavogsbæjar í langdregnu Vatnsendamáli, þar sem hluti erfingja Sigurðar K. Hjaltested krafðist 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. 23. maí 2023 14:34 75 milljarða krafa á Kópavogsbæ fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir 75 milljarða kröfu erfingja Sigurðar K. Hjaltested, eigenda Vatnsendajarðarinnar. Erfingjarnir krefja Kópavogsbæ um milljarðana, en bærinn var sýknaður í Landsrétti í júní á þessu ári. 14. september 2022 22:45 Vatnsendamál sent aftur til héraðsdóms Hæstiréttur hefur lagt fyrir Héraðsdóms Reykjaness að taka hið 75 milljarða Vatnsendamál til efnismeðferðar. 17. mars 2016 17:40 Máli erfingjanna á Vatnsenda vísað frá dómi Snerist um 75 milljarða skaðabótakröfu. 29. janúar 2016 12:05 Vendingar í Vatnsendamálinu: Frávísunarkröfu Kópavogsbæjar hafnað og málinu skipt í tvo hluta Erfingjarnir fara fram á 75 milljarða króna í skaðabætur frá Kópavogsbæ. 29. september 2015 11:16 75 milljarða krafa vofir yfir Kópavogi Eigendur Vatnsendajarðarinnar í málaferlum við Kópavogsbæ sem hefur beðið um frest. 20. mars 2015 12:03 Segja Þorstein ekki eiga Vatnsendaland Þorteinn Hjaltested krafðist þess að Kópavogsbær greiddi honum tæpa 7 króna milljarða króna fyrir vanefndir í Vatnsendamálinu. Héraðsdómur sagði málið vanreifað og vísaði því frá. Bæjarstjóri segir þetta góð tíðindi fyrir íbúa Kópavogs. 20. janúar 2014 11:00 Orðlaus yfir margföldum mistökum í Vatnsendamálinu Einn af lögmönnum erfingja dánarbús Sigurðar Hjaltested ábúanda á Vatnsenda, segist nánast orðlaus yfir margföldum mistökum stjórnsýslu og sýslumanns Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu allt frá 1968 til 2007. Mistök hafi verið gerð við þinglýsingu skjala og ábúendur á Vatnsenda komust hjá því að greiða erfðafjárskatt frá síðustu aldamótum. 11. maí 2013 18:39 Mest lesið Þorleifur Kamban er látinn Innlent Leiðbeinandinn ákærður fyrir að nauðga einu barni tvisvar Innlent Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Erlent Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Erlent Á leið í frí en hvergi nærri hættur Innlent Áralangur misskilningur um losunarmarkmið Íslands Innlent „Dáldið vók“ Diljá sé sjálf með forneskjuleg viðhorf til kvenna Innlent Safnar undirskriftum til varnar síðdegisbirtunni Innlent Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Erlent Borgin hafi gert úrbætur en sólin sé aðalvandamálið Innlent Fleiri fréttir Tilfinningar í þingsal og Inga brosir hringinn „Meiddist og varð mjög hræddur um líf sitt“ Nú eru kettir og hundar leyfðir í fjölbýli Vondar fréttir af tollum ESB og gróf árás á Stuðlum Samingur SÞ um réttindi fatlaðs fólks lögfestur Hæstiréttur hafnaði kröfum hópnauðgara Íbúar kvarta undan myrkri „Dáldið vók“ Diljá sé sjálf með forneskjuleg viðhorf til kvenna Starfsmaður Stuðla grunaður um að ráðast á barn Sonurinn týndur síðan í ágúst „Ég hef aldrei grátið af gleði áður en ég gerði það í gær“ Leiðbeinandinn ákærður fyrir að nauðga einu barni tvisvar Ísland ekki undanþegið verndartollum ESB á kísilmálm Dularfullar skemmdir reyndust vera eftir strangheiðarlegt óhapp Móta stefnu um notkun gervigreindar Dómsmál á hendur starfsmanni Múlaborgar hafið Þorleifur Kamban er látinn Safnar undirskriftum til varnar síðdegisbirtunni Umræða um að flokkurinn beri skarðan hlut jaðri við áróður Drífa Kristín skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu löggæslumála Krefjast þess að stjórnvöld slíti samstarfi við Anthropic Borgin hafi gert úrbætur en sólin sé aðalvandamálið Ofbeldi gegn öldruðum færist í aukana og réttindi fatlaðra loks lögfest Óskar eftir fundi með Apple Ekkert vesen á hrjótandi gesti í Sjóminjasafninu Dóra Björt hætt við formannsframboðið Á leið í frí en hvergi nærri hættur Fundur fólksins veglegur í ár Framsókn vill endurskoða tilmæli borgarinnar um barnaafmæli Áralangur misskilningur um losunarmarkmið Íslands Sjá meira
Kópavogur sýknaður af milljarðakröfum Landsréttur hefur snúið dómi héraðsdóms, sem dæmdi Kópavog til að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested 1,4 milljarða króna, við. Magnús Pétur krafðist alls 5,6 milljarða króna í málinu, sem faðir hans heitinn höfðaði upphaflega. 6. febrúar 2025 17:15
Ekki tekið ákvörðun um að áfrýja í Vatnsendamáli Kópavogsbær hefur ekki tekið ákvörðun um að áfrýja ákvörðun Héraðsdóms Reykjaness sem gert hefur bænum að greiða Magnúsi Pétri Hjaltested, syni Þorsteins Hjaltested heitins, 1,4 milljarða króna ásamt vöxtum í deilum um Vatnsendaland. Bærinn hefur undanfarin ár verið með varúðarfærslur vegna málsins í bókum sínum. 7. júlí 2023 16:16
Staðfestu sýknu Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu Hæstiréttur staðfesti í dag sýknu Kópavogsbæjar í langdregnu Vatnsendamáli, þar sem hluti erfingja Sigurðar K. Hjaltested krafðist 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. 23. maí 2023 14:34
75 milljarða krafa á Kópavogsbæ fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir 75 milljarða kröfu erfingja Sigurðar K. Hjaltested, eigenda Vatnsendajarðarinnar. Erfingjarnir krefja Kópavogsbæ um milljarðana, en bærinn var sýknaður í Landsrétti í júní á þessu ári. 14. september 2022 22:45
Vatnsendamál sent aftur til héraðsdóms Hæstiréttur hefur lagt fyrir Héraðsdóms Reykjaness að taka hið 75 milljarða Vatnsendamál til efnismeðferðar. 17. mars 2016 17:40
Máli erfingjanna á Vatnsenda vísað frá dómi Snerist um 75 milljarða skaðabótakröfu. 29. janúar 2016 12:05
Vendingar í Vatnsendamálinu: Frávísunarkröfu Kópavogsbæjar hafnað og málinu skipt í tvo hluta Erfingjarnir fara fram á 75 milljarða króna í skaðabætur frá Kópavogsbæ. 29. september 2015 11:16
75 milljarða krafa vofir yfir Kópavogi Eigendur Vatnsendajarðarinnar í málaferlum við Kópavogsbæ sem hefur beðið um frest. 20. mars 2015 12:03
Segja Þorstein ekki eiga Vatnsendaland Þorteinn Hjaltested krafðist þess að Kópavogsbær greiddi honum tæpa 7 króna milljarða króna fyrir vanefndir í Vatnsendamálinu. Héraðsdómur sagði málið vanreifað og vísaði því frá. Bæjarstjóri segir þetta góð tíðindi fyrir íbúa Kópavogs. 20. janúar 2014 11:00
Orðlaus yfir margföldum mistökum í Vatnsendamálinu Einn af lögmönnum erfingja dánarbús Sigurðar Hjaltested ábúanda á Vatnsenda, segist nánast orðlaus yfir margföldum mistökum stjórnsýslu og sýslumanns Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu allt frá 1968 til 2007. Mistök hafi verið gerð við þinglýsingu skjala og ábúendur á Vatnsenda komust hjá því að greiða erfðafjárskatt frá síðustu aldamótum. 11. maí 2013 18:39