Ríkisstjórnin sýndi á spilin Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 3. febrúar 2025 18:01 Formenn stjórnarflokkanna kynntu þingmálaskrá fyrir vorþingið. Forsætisráðuneytið Á blaðamannafundi í forsætisráðuneytinu í dag kynntu formenn stjórnarflokkanna fyrstu verk ríkisstjórnarinnar og sögðu frá þingmálaskrá fyrir vorþingið.
Frumvarp um stöðugleikareglu verður á dagskrá strax í febrúar og er ætlað að tryggja að fjármál ríkisins styðji við lægri vexti með því að boða engin ný útgjöld á árinu án þess að hagrætt verði á móti eða aukinna tekna aflað. Ríkisstjórnin hyggst fara í aðgerðir til að draga úr umfangi AirBnB og annarrar skammtímaleigu til ferðamanna, lækka fjármögnunarkostnað hjá húsnæðisfélögum án hagnaðarsjónarmiða og liðka fyrir uppbyggingu einingahúsa sem liði í bráðaaðgerðum í húsnæðismálum. Lagt verður fram frumvarp um að aldursviðbót örorkulífeyris haldist ævilangt og að jólaeingreiðsla verði greidd til öryrkja og eldra fólks með lágar tekjur sem nemur áætluðum tveimur milljörðum. Þetta og margt fleira kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra sem haldinn var klukkan fjögur síðdegis í dag. Þar var planið margumrædda kynnt. Tækla skammtímaleigu og liðka fyrir einingahúsum „Það er full eining í þessari ríkisstjórn um öll þau mál sem birtast í þingmálaskrá fyrir vorþingið, sem er mikil breyting frá því hefur tíðkast á síðustu árum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. „Við höfum lagt upp nýtt verklag og ég hef meðal annars fundað einslega með hverjum einasta ráðherra til að setja fram sterka þingmálaskrá sem er trúverðug. Í því felast skýr skilaboð frá samstíga ríkisstjórn.“ Ríkisstjórnin ætlar, líkt og fram kom, að ráðast í bráðaaðgerðir í húsnæðismálum. Frumvarp fjármálaráðherra um svokallaða stöðugleikareglu, það er að engin ný útgjöld verði boðuð án tilsvarandi tekjuöflunar, verði á dagskrá strax í upphafi þingsins. Með því er ætlað að tryggja að fjármál hins opinbera stuðli að lægri vöxtum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti aðgerðir í húsnæðismálum.Forsætisráðuneytið Í því samhengi er tekið fram að hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar muni skila tillögum til hagræðingar þann 28. febrúar næstkomandi. Það sem hæst ber á í téðum bráðaaðgerðum í húsnæðismálum er að ná stjórn á AirBnB og sambærilegri skammtímaleigu ferðamanna, tryggja skilvirka framkvæmd á veitingu hlutdeildarlána, lækka fjármögnunarkostnað hjá húsnæðisfélögum án hagnaðarsjónarmiða og breyta reglugerðinni til að liðka fyrir uppbyggingu einingahúsa. Þá á einnig að leiða í lög skráningarskyldu leigusamninga til að fá áreiðanlega mynd af þróun leigumarkaðar. Hækkanir í fæðingarorlofskerfinu Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, kynnti aðgerðir í velferðarmálum. Hún segir aðgerðirnar skipta máli, kosta lítið og koma hratt til framkvæmda. Ríkisstjórnin hyggst sjá til þess að meðferðarúrræðum verði ekki lokað í sumar og leggja fram frumvarp um að aldursviðbót örorkulífeyris haldist ævilangt en falli ekki niður þegar öryrki verður 67 ára. Þá verði einnig greidd jólaeingreiðsla til öryrkja og eldra fólks með lágar tekjur og stöðu hagsmunafulltrúa eldra fólks komið á. Þá stendur til að samþykkja á vorþingi lagafrumvarp til að stöðva kjaragliðnun launa og lífeyris. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra kynnti breytingar á fæðingarorlofskerfinu.Forsætisráðuneytið Fyrstu breytingar á fæðingarorlofskerfinu muni birtast í frumvarpi í mars til að bæta hag fjölburaforeldra og lengja fæðingarorlof foreldra sem veikjast á meðgöngu eða eftir fæðingu. Að auki eigi að tryggja að hækkanir í fæðingarorlofskerfinu gangi til allra foreldra í fæðingarorlofið óháð fæðingardegi barns. Fæðingarstyrkir námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar hækki um 30 þúsund krónur á mánuði. „Og síðast en ekki síst risastórt velferðar- og mannréttindamál sem ríkisstjórnin leggur fram í mars: Við ætlum að löggilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,“ segir Inga. Frumvarp um Hvammsvirkjun strax á dagskrá Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir ríkisstjórnina ætla að höggva á hnútinn í orkumálum og gera breytingar í sjávarútvegi sem auka gagnsæi og réttlæti í greininni. Frumvarp verði lagt fram strax á fyrstu dögum þingsins til að eyða óvissu í kringum Hvammsvirkjun og aðrar mikilvægar framkvæmdir. Orkuforgangur almennings verði á dagskrá ásamt umfangsmiklu einföldunarfrumvarpi til að hraða og samræma málsmeðferð í leyfisveitingum, án þess að slá af kröfum um umhverfisvernd og almannasamráð. Þá verði lögð fram rammaáætlun þar sem virkjunarkostir verði flokkaðir í verndarflokk eða nýtingarflokk samkvæmt tillögum verkefnastjórnar rammaáætlunar. Í sjávarútvegsmálum hyggst ríkisstjórnin leggja fram frumvarp í febrúar sem snýr að eignarhaldi tengdra aðila á útgerðarfyrirtækjum, frumvarp um strandveiðar og breytingar á veiðigjaldi til að það endurspegli betur raunveruleg aflaverðmæti. Undið verði ofan af breytingum á búvörulögum sem dæmdar voru ólöglegar í héraðsdómi. Ríkisstjórnin ætlar að gera nýja fríverslunarsamninga við Indland, Taíland og Síle og uppfæra samninginn við Úkraínu. Þá hyggst ríkisstjórnin ljúka við innleiðingu bókunar 35 í vor. Stefnt er að því að stór auðlinda- og atvinnumál verði lögð fram á haustþingi sem kalli á meiri vinnu í ráðuneytum eða samráð við fólk og fyrirtæki. Lagafrumvarp um lagareldi verði lagt fram þar sem gert sé ráð fyrir tímabundnum rekstrarleyfum, afnámi á undanþágum frá skattlagningu orkumannvirkja, jöfnun á dreifikostnaði raforku, ný heildarlög um loftslagsmál og nýja samgönguáætlun. „Við ætlum að ganga í verkin og klára ýmis mál sem hafa verið stopp alltof lengi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Fækkun ráðuneyta og hluti námslána verði styrkur Fækkun ráðuneyta verði lögð fyrir Alþingi og gert er ráð fyrir að hagræðing af því nemi um 350 milljónum á ári. Þá á að ljúka við sölu Íslandsbanka með ferli þar sem almenningur hefur forgang. Menntamál verði áberandi og boðuð eru frumvörp um nýtt fyrirkomulag við námsmat grunnskóla, um fjölbreytt framboð á námsgögnum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, sem verði gerð gjaldfrjáls í áföngum, og um breytingar á menntasjóði námsmanna. Stefnt er að því að 20 prósent námslána breytist í styrk í lok hverrar annar en 10 prósent við námslok. Með breytingum á lögum um sviðslistir standi til að bæta umgjörð og koma rekstri óperustarfsemi fyrir innan Þjóðleikhússins. Þá sé vinna hafin við endurskoðun á styrkjum til einkarekinna fjölmiðla og þak á styrkjum til þeirra lækkað strax í vor en styrkirnir framlengdir til eins árs. Sorgarleyfi fyrir foreldra og fjölgun lögreglumanna Frumvarp um sorgarleyfi fyrir foreldra sem missa maka og frumvarp um lágmarksskatt á fjölþjóðleg stórfyrirtæki verði einnig lögð fram. Ríkisstjórnin hyggst ljúka við heildarendurskoðun á lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og farið verður í fyrsta lið í endurskoðun á lögum um leigubíla sem snýr meðal annars að því að koma aftur á stöðvarskyldu. Stefnt er að því að sameina sýslumannsembætti úr níu í eitt án þess að það komi niður á þjónustu á landsbyggðinni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kynnti breytingar í orku- og sjávarútvegsmálum.Forsætisráðuneytið Lögreglumönnum verði fjölgað um fimmtíu strax á þessu ári og mun dómsmálaráðherra leggja fram frumvarp strax í febrúar sem gerir lögreglu kleift að krefjast farþegaupplýsinga og þá á að gera það heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd fyrir einstaklinga sem fremja alvarleg afbrot eða síendurtekin. Loks er stefnt á umbætur í heilbrigðismálum til viðbótar við sumaropnun meðferðarúrræða. Þar eru teknar fram reglugerðarbreytingar til að draga úr skriffinnsku og vottorðafargani, skyldu til að halda rafrænar sjúkraskrár svo hægt sé að samnýta upplýsingar og breytingar á lögum um neyslurými.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Rekstur hins opinbera Mest lesið Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Innlent Borgarstjóri fór með rangt mál Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Innlent Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Innlent Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Innlent Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Innlent Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Innlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Innlent Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Innlent Fleiri fréttir Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Afsögn þingmanns, hótanir Trumps og í beinni frá Svíþjóð Mun hærri dánartíðni og meiri örorka hjá fyrrum vöggustofubörnum „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Vilja Laugardalshöll líkt og þeim var lofað Kviknaði í Svarta sauðnum í Þorlákshöfn Taldi ekki sérstaka nauðsyn á að hneppa Helga Bjart í varðhald Barbara sakar Sigríði um einelti og Valtý um gagnaleka „Vonbrigði“ Vill „nánast loka alfarið“ á útlendinga utan Evrópu Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Mikilvægt að vanda sig og beita varúð Telur Pétur hafa svarað ágætlega fyrir lóðaviðskipti Sjaldgæf afsögn þingmanns og leikskóla lokað að óbreyttu Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Einn af hverjum fjórum stjórnendum notar gervigreind daglega Telur viðbrögð Guðbrands rétt og skynsamleg Bærinn fær 70 milljónir fyrir gamla Landbankahúsið sem fær nýtt hlutverk Kolbeinn Tumi tekur við af Erlu Björgu Þingið kallar áfram eftir hugmyndum frá almenningi Manneklan mest hjá skólum og frístundaheimilum sem tilheyra Austurmiðstöð Sjá meira