Sjáðu Benóný Breka bæta markametið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. október 2024 16:28 Benóný Breki Andrésson fagnar eftir að hafa jafnað markametið í efstu deild. vísir/anton KR-ingurinn Benóný Breki Andrésson bætti í dag markametið í efstu deild karla í fótbolta. Hann skoraði fimm mörk þegar KR kjöldró HK, 7-0, í lokaumferð Bestu deildarinnar.
Fyrir leikinn á AVIS-vellinum í Laugardalnum hafði Benóný skorað sextán mörk í Bestu deildinni. Það hljóp svo heldur betur á snærið hjá þessum nítján ára framherja í dag því hann skoraði fimmu í leiknum. Eftir hálftíma fiskaði Benóný vítaspyrnu sem hann skoraði sjálfur úr. Þorsteinn Aron Antonsson, varnarmaður HK, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt og HK-ingar kláruðu leikinn því einum færri. KR-ingar nýttu sér það til hins ítrasta og sýndu HK-inga enga miskunn. Benóný skoraði annað mark sitt og þriðja mark KR á 32. mínútu. Á 51. mínútu jafnaði hann svo markamet þeirra Péturs Péturssonar, Guðmundar Torfasonar, Þórðar Guðjónssonar, Tryggva Guðmundssonar og Andra Rúnars Bjarnasonar þegar hann skoraði sitt nítjánda mark á tímabilinu. Benóný var þó hvergi nærri hættur. Hann sló markametið á 67. mínútu þegar hann skoraði tuttugasta mark sitt í sumar. Benóný bætti svo einu marki við á lokamínútunni. Klippa: Benóný Breki slær markametið í efstu deild Hann skoraði því 21 mark í 26 leikjum í sumar. Viktor Jónsson er næstmarkahæstur í deildinni með átján mörk en hann er núna að spila með ÍA gegn Val á Hlíðarenda. Fyrir leikinn í dag fékk Benóný Flugleiðahornið fyrir að vera valinn besti ungi leikmaður Bestu deildarinnar. Mörkin Benónýs úr leiknum í dag má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla KR HK Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira