Í Kompás sem sýndur var á mánudag var fjallað um sprengingu í ásókn þyngdarstjórnunarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Rætt var við lækna um þeirra skoðun á lyfjunum og konu sem hefur sprautað sig með þeim í von um að léttast.
Hröð en skiljanleg aukning
Tryggvi Helgason, barnalæknir sem hefur sérhæft sig í offitumeðferð var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann segir aukningu í notkun á lyfjunum skiljanlega.
„Þetta er hröð aukning en hún er skiljanleg að því leyti að það eru mjög margir á Íslandi sem eru með offitu, það er mjög hátt hlutfall af þjóðinni með offitu. Það þarf ekkert endilega að koma á óvart að margir vilji fara á lyf sem hjálpar við offitu þannig það eitt og er ekki endilega eitthvað brjálæðislega óvænt.“
Hátt í hundrað börn á lyfjunum
Hann segir mismunandi hvað veldur offitu hjá einstaklingum. Um 75 til 100 börn eru á þessum lyfjum.
„Við vitum ekki alveg hvort börn þurfi að vera á þessum lyfjum ævilangt og vonum að við getum stoppað notkun hjá einhverjum, en það er líklegt að einhverjir verði á þeim til lengri tíma.“
Er réttlætanlegt að setja börn á lyf sem ekki er vitað nægilega mikið um til langs tíma?
„Í rauninni er svarið mjög persónubundið fyrir hvert og eitt barn og það gildi um allar ákvarðanir sem læknar taka. Þú þarft að horfa á það hvaða sjúkdóm þú ert að meðhöndla og hvað gerist ef ég geri það ekki?“
Læknar þurfi að spyrja sig hvort afleiðingar offitu séu verri en hugsanlegar aukaverkanir lyfsins.
„Ef svarið er já, þá er það algjörlega réttlætanleg ákvörðun.“
Hann segir vitað um langtímaafleiðingar lyfjanna að vissu leyti og segir Tryggvi að öll þau börn sem hann hafi sett á lyfin þurfi virkilega á þeim að halda til að snúa sinni þróun við.
„Valkosturinn er alltaf að meðhöndla ekki og ég vel það oft.“
Ein heimsókn á heilsugæslu eigi ekki að duga
Í Kompás kom fram að hvaða læknir sem er má ávísa lyfjunum og er algengt að fólk fái þau með einni heimsókn á heilsugæsluna. Læknir sagði of marga á lyfjunum sem eigi ekki að vera á þeim.
„Heilsugæslulæknar eru sérfræðingar þannig það er ekkert að því að þeir vinni með sínum skjólstæðingum ef þeir þekkja þá vel, en það skiptir miklu máli að læknirinn þekki lyfið og þekki skjólstæðinginn.“
En er ekkert óeðlilegt að ein heimsókn á heilsugæsluna dugi til að fá lyfin?
„Það er ekki þannig sem þetta lyf á að vera notað, það er bara svoleiðis. Ef þú ert með einhvern sjúkling fyrir framan þig sem þú þekkir ekkert þá áttu ekki að skrifa upp á lyf nema búa til eitthvað plan með viðkomandi um hvað á að gera og hvað er búið að gera og svo framvegis. Þannig þetta er ekki lausn eitt og sér.“
Lyfin leysi ekki offituvandann
Offita hefur aukist gríðarlega og segir Tryggvi þróunina ekki góða.
„Ég er búinn að vara við því í mörg ár að Íslendingar séu að auka við offitu hjá bæði fullorðnum og börnum. En þá þurfa heilbrigðisyfirvöld að koma inn í það verkefni, forvarnaryfirvöld, landlæknir og stjórnmálin öll þurfa að koma að því að breyta landslaginu á Íslandi.“
Huga þurfi að mörgum þáttum. Fólk þurfi að gefa sér tíma til að elda hollan mat, hreyfa sig og minnka bílanotkun á milli staða.
„Þetta eru hlutir sem við þurfum að vinna með ef við ætlum að fækka þeim sem eru með offitu á Íslandi, lyfin leysa það ekki. Við erum með lyfjunum að hjálpa þeim sem eru komnir í vandræði.“