Eldunarolía og eldsneyti flutt í sömu tankbifreiðunum án þrifa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. júlí 2024 08:47 Málið er sagt hafa vakið mikla reiði í Kína. Getty Mikil reiði er sögð hafa brotist út í Kína eftir að greint var frá því að stórfyrirtæki hefðu brotið lög og reglur með því að flytja olíu til eldunar og eldsneyti í sömu tankbifreiðunum, án þess að þrífa þær á milli.
Um er að ræða fyrirtækin Sinograin og Hopefull Grain and Oil Group. Miðillinn Beijing News greindi frá því í síðustu viku að það væri „opið leyndarmál“ að bílarnir flyttu bæði eldsneyti og önnur efni annars vegar og ætan vökva á borð við olíu og sýróp hins vegar, án þess að tankarnir væru hreinsaðir á milli. Matvælaeftirlitsstofnun ríkisráðsins tilkynnti á þriðjudag að rannsókn yrði hafin á málinu og sekum refsað samkvæmt lögum. Talsmenn ofannefndra fyrirtækja hafa einnig sagt rannsóknir hafnar á ásökununum en virðast ætla að leggja ábyrgðina á herðar flutningafyrirtækjanna sem starfa fyrir þau. Málið hefur orðið til þess að stórfyrirtæki í matvælaframleiðslu hafa séð sig knúin til að stíga fram og neita því að nota eldsneytisflutningabifreiðar til að flytja matvöru. Xi Jinping, forseti Kína, hefur lagt mikla áherslu á matvælaöryggi og öryggi matvæla og ríkismiðlar hafa verið afar gagnrýnir í umfjöllun sinni um hneykslið. Framganga fyrirtækjana jafngildi því að eitrað hafi verið fyrir neytendum og engin virðing borin fyrir lífi þeirra né heilsu. Hér má finna ítarlega umfjöllun CNN um málið.
Kína Matvælaframleiðsla Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira