Dýrmætur sigur Þórs en toppliðið skoraði ekki Sindri Sverrisson skrifar 4. júlí 2024 20:00 Fjölnismenn eru á toppi Lengjudeildarinnar en gáfu næstu liðum færi á að minnka forskotið í þessari umferð. vísir/Diego Fjölnismenn verða á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta að loknum fyrri helmingi deildakeppninnar, eftir markalaust jafntefli við Keflavík í kvöld í 11. umferðinni.
Fjölnir hefur aðeins tapað einum leik í deildinni það sem af er leiktíð og er með 24 stig, fjórum stigum á undan Njarðvík sem á þó inni leik sinn við Grindavík sem nú stendur yfir. Engin mörk voru skoruð í Grafarvoginum í kvöld og Keflvíkingar hafa þar með spilað fimm leiki í röð án sigurs, en gert í þeim fjögur jafntefli, og eru í 8. sæti með 12 stig. Keflavík missti Þór upp fyrir sig í kvöld því Þórsarar unnu dýrmætan 3-1 sigur gegn Gróttu á Akureyri, og fara því glaðbeittir inn í Pollamótshelgina. Grótta komst yfir með marki Péturs Theódórs Árnasonar í lok fyrri hálfleiks, en Þórsarar voru fljótir að komast yfir í seinni hálfleik með mörkum frá Ragnari Óla Ragnarssyni og Kristófer Kristjánssyni. Rafael Victor innsiglaði svo sigurinn í blálokin. Fyrir leikinn á Akureyri voru Þór og Grótta bæði með 10 stig, aðeins stigi fyrir ofan fallsæti, en sigurinn kom Þór upp í 6. sæti, að minnsta kosti tímabundið, og beint inn í baráttuna um umspilssæti. Staðan skýrist betur í kvöld þegar leikjum ÍR og Aftureldingar, og Njarðvíkur og Grindavíkur, lýkur. Umferðinni lýkur svo á laugardag þegar ÍBV mætir Leikni og Þróttur mætir Dalvík/Reyni. Upplýsingar um markaskorara eru af vef Fótbolta.net.
Lengjudeild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira