Sjáðu HK skora sigurmark frá miðju Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2024 10:00 HK-ingar hafa unnið tvo leiki í röð og eru komnir upp í áttunda sæti. Vísir/Hulda Margrét HK vann dramatískan sigur á Stjörnunni í Bestu deild karla í gær en flestir héldu þó að Kópavogsliðið hefði kastað frá sér sigrinum.
HK vann leikinn 4-3 en Stjörnumenn höfðu náð að breyta stöðunni úr 3-1 fyrir HK í 3-3. Þetta var heldur betur líflegur leikur enda komst Stjarnan yfir eftir aðeins 35 sekúndna leik. HK svaraði með þremur mörkum og komst því í 3-1 og þannig var staðan eftir 85 mínútna leik. Stjörnumenn jöfnuðu hins vegar með tveimur mörkum á þremur mínútum undir lok leiksins. HK-ingar héldu kannski að þeir væri búnir að henda frá sér sigrinum en þeir áttu lokaorðið. Stjörnumenn voru reyndar með boltann og að reyna að sækja sigurmarkið þegar skelfileg sending úr vörninni rataði beint á HK-inginn Magnús Arnar Pétursson. Hann gaf hann strax á Atla Hrafn Andrason. Atli Hrafn var staddur í miðjuhringnum en hikaði ekki í sekúndu heldur skaut bara þaðan og yfir Árna Snæ Ólafsson í markinu sem var kominn of framarlega. Þetta mark rétt innan miðju reyndist vera sigurmark HK. Mörk HK skoruðu auk Andra Hrafns þeir Arnþór Ari Atlason og Viktor Helgi Benediktsson. Eitt markanna var sjálfsmark. Emil Atlason skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna og Haukur Örn Brink var með eitt mark. Hér fyrir neðan má sjá mörkin og dramatíkina úr Kórnum í gær. Klippa: Mörkin úr leik HK og Stjörnunnar
Besta deild karla HK Stjarnan Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira