Í nóvember 2021 var Jóhannes dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Annað sambærilegt mál, gegn fimmtu konunni, var svo tekið fyrir í Landsrétti í síðastliðnum október og hann dæmdur í átján mánaða fangelsi til viðbótar.
Rak fingur inn í leggöng og endaþarm
Jóhannes er þekktur nuddari og höfðu konurnar allar leitað til hans vegan stoðkerfisvandamála og vænst þess að fá meðhöndlum hjá honum í samræmi við þá kvilla. Fram kom í dómum yfir honum að við meðferð hafi Jóhannes byggt upp traust hjá konunum og brotið á þeim.
Höfðu þær allar verið fáklæddar og varnarlausar á nuddbekk á meðhöndlunarstofu hans þegar brotin áttu sér stað. Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2015 og voru brotin keimlík. Þess ber að geta að Jóhannes er hvorki lærður sjúkranuddari né hnykkjari en hann hefur, að eigin sögn, lært nudd við Naturmedicinske Kursuscenter í Kaupmannahöfn og sótt námskeið í hnykkingum á Spáni.
Hann nauðgaði konunum þegar hann rak fingur í leggöng eða endaþarm þeirra án nokkurra tenginga við stoðkerfismeðhöndlunina sem þær þurftu á að halda. Mikill fjöldi kvenna kærði Jóhannes Tryggva en ellefu af fimmtán málum voru felld niður. Fjörutíu konur höfðu leitað til réttargæslumanns vegna Jóhannesar þegar fréttastofa fjallaði um málið í febrúar 2022.
Nuddar fólk inni á herbergi
Jóhannes Tryggvi hóf afplánun á Litla-Hrauni um mitt ár 2022 en var færður á Kvíabryggju í febrúar í fyrra. Allir fangar hefja afplánun í lokuðu fangelsi en hafa möguleika a að fara yfir í opið fangelsi, eins og á Kvíabryggju, þar sem hvorki eru rimlar fyrir gluggum né svæðið sérstaklega afgirt.
Fréttastofu hafa borist ábendingar frá nokkrum vegna nuddþjónustu Jóhannesar á Kvíabryggju og hefur fólk furðað sig á að Jóhannes fái að stunda slíka iðju innan fangelsisveggjanna. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Jóhannes komið upp nuddbekk inni á herbergi sínu – sem fréttastofa hefur ljósmynd af undir höndum – þar sem hann hefur undanfarið hálft ár tekið á móti fólki og meðhöndlað.
Þar á meðal tekur hann á móti aðstandendum annarra fanga og nuddar hann einhvern í hverri viku. Einn þeirra sem fréttastofa hefur rætt við hafði sjálfur verið nuddaður af Jóhannesi inni á Kvíabryggju og greitt fyrir það.
„Við vitum ekkert hvað gerist inni á herbergjum“
Páll Winkel fangelsismálastjóri vísaði fyrirspurn fréttastofu vegna málsins til Birgis Guðmundssonar, forstöðumanns á Kvíabryggju. Birgir sagðist ekki geta tjáð sig um málið og sagði starfsmenn fangelsisins ekki vita hvað færi á milli fanga og gesta þeirra inni á herbergjum.
Rúmast það innan reglna fangelsisins að fangi geti veitt svona þjónustu?
„Hann fær gesti eins og aðrir. Ég veit svo sem ekki hvað… Þetta eru hans gestir, ég veit ekkert hvað fer þeirra á milli,“ segir Birgir.
„Menn hafa verið með vinnuna sína hérna, bókhald og annað. Menn fá að koma með svoleiðis með sér og vinna frá fangelsum. Svona lagað höfum við aldrei þurft að taka afstöðu til í rauninni,“ segir Birgir.
„Við getum ekki stoppað það ef hann nuddar einhvern samfanga sinn eða einhvern gest, sem kemur hérna. Við vitum ekkert hvað gerist inni á herbergjum þegar koma heimsóknargestir. Það er alveg útilokað mál.“