Lífið

Stjörnulífið: Allt á út­opnu í sólinni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi.
Stjörnulífið er vikulegur fastur liður á Vísi.

Sumarið er formlega gengið í garð og nutu stjörnur landsins veðurblíðunnar í vikunni eins og þeim einum er lagið. Menningarlífið iðaði á HönnunarMars þar sem fjöldi fólks kynnti sér íslenska hönnun víða um höfuðborgina.

Ef Instagram-færslurnar birtast á ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.

HönnunarMars 

Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró, rölti um miðbæinn ásamt unnustu sinni Línu Birgittu Sigurðardóttur. Þau létu sig ekki vanta á HönnunarMars og kíktu meðal annars í teiti í íslensku tískuhönnunarverslunina Apotek Atelier á laugardag. 

Birgitta Líf Björnsdóttir kíkti við í partý hjá Hildi Yeoman á föstudaginn þar sem skvísur landsins sameinuðust við að fagna nýrri fatalínu Yeoman.

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður lét sig ekki vanta á hátíðina.

ABBA tónleikar í Hörpu

Dívur landsins komu fram á Abba tónleikum í Hörpu um helgina. 

Telur niður dagana í drenginn

Annie Mist Þórisdóttir Crossfit-stjarna segist líða eins og hún sé búin að vera ólétt í ár. Hún æfir enn af krafti líkt og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

Afmælisveisla í Tokyo

Helgi Ómarsson ljósmyndari og áhrifavaldur er staddur í Japan ásamt vinum sínum.

Ástfangin í 24 ár

Eva Ruza Miljevic skemmtikraftur veislustýrði á árshátíð í Sitges og tók eiginmann sinn með. Hjónakornin fögnuðu 24 ára sambandsafmæli sínu í ferðinni.

Stefnumót í miðborginni

Vinkonurnar og áhrifavaldarnir Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir fóru á stefnumót í höfuðborginni.

Ítalía heillar

Tanja Ýr Ástþórsdóttir nýtur lífsins á Ítalíu þar sem hún gerir vel við sig í mat og drykk.

Fullkomin afmælishelgi

Jóhanna Helga Jensdóttir útvarpskona og áhrivavaldur fagnaði 28 ára sínu um helgina.

Slökun og notalegheit

Áhrifa­vald­ur­inn Bryn­hild­ur Gunn­laugs­dótt­ir slakaði á í Vök Baths við Urriðavatn á Aust­ur­landi um helgina.

Lýðræðisvaktin í sólinni

Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir voru á lýðræðisvaktina og heilsuðu upp á forsetaframbjóðendur á sumardaginn fyrsta.

Vinkonur á Kjarval

Listakonurnar Salka Sól Eyfeld og Ebba Katrín Finnsdóttir pósuðu fyrir Kristínu eldfjallafræðing á Kjarvalsstofu.

Skvísupartý á Edition

Stjörnuþjálfarinn Gerða InShape fagnaði heimasíðu sinni ásamt skvísuhópi á Edition hótelinu síðastliðið miðvikudagskvöld. 

Esjuganga í sólinni

Einkaþjálfarinn Gummi Emil fór ber að ofan á Esjuna með hópi stráka og hrópaði Víkingar vakna. 

Hoppukastali og kokteilabar 

Athafnakonan Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon knattspyrnukappi héldu glæsilega afmælisveislu fyrir dóttur þeirra Mattheu sem fagnaði fjögurra ára afmæli sínu á dögunum.

Árshátíð Kviku

Leikkonan María Thelma Smáradóttir leikkona og unnusti hennar Steinar Thors fóru á árshátíð Kviku í Hörpu um helgina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×