Southgate og Frank í sigti Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2024 18:01 Gareth Southgate hefur stýrt United-manninum Marcus Rashford í enska landsliðinu. Getty/Adam Davy Bandaríski íþróttamiðillinn ESPN hefur heimildir fyrir því að nýir forráðamenn Manchester United séu með þrjá stjóra til skoðunar sem mögulega arftaka Hollendingsins Eriks ten Hag.
Tekið er fram að engin ákvörðun hafi verið tekin um að láta Ten Hag fara. Sir Jim Ratcliffe og hans fólk í Ineos Group, sem nú sér um fótboltarekstur United eftir að hafa eignast 27,7% hlut í félaginu í síðasta mánuði, vill hins vegar hafa vaðið fyrir neðan sig. Þess vegna er nú verið að vega og meta kosti þeirra Roberto De Zerbi, Thomas Frank og Gareth Southgate. Samkvæmt heimildum ESPN koma þó fleiri stjórar til greina. Brighton's Roberto De Zerbi, Brentford's Thomas Frank and England coach Gareth Southgate are being assessed as potential successors to Erik ten Hag in the event that he leaves his post as Manchester United coach this summer, sources have told @MarkOgden_. pic.twitter.com/8FnNRvafTb— ESPN FC (@ESPNFC) March 6, 2024 De Zerbi er stjóri Brighton, Frank stýrir Brentford og Southgate hefur stýrt enska landsliðinu í átta ár. Ineos-menn eru sagðir staðráðnir í að vera vel undirbúnir í sumar þar sem að ljóst sé að Liverpool, Bayern München og Barcelona hafi þegar hafist handa við að ráða nýja stjóra. United fékk Ten Hag frá Ajax í júní 2022 og samdi við hann til þriggja ára, með möguleika fyrir United á að framlengja þann samning um eitt ár. Pressa er á Hollendingnum að tryggja United sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og staðan ekki góð, en eftir töp gegn Fulham og Manchester City er United ellefu stigum á eftir Aston Villa sem er í 4. sæti. Mögulegt er að 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar muni einnig gefa sæti í nýrri útgáfu Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð, en United er sex stigum á eftir Tottenham sem auk þess á leik til góða.
Enski boltinn Mest lesið Allt small og Rauðu djöflarnir sjá úrslitaleikinn í hillingum Fótbolti „Annar fóturinn í úrslitaleikinn en ekkert er búið enn“ Fótbolti „Þetta var hið fullkomna kvöld“ Fótbolti „Þetta er ekki búið“ Fótbolti Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Enski boltinn „Erum komnar til þess að fara alla leið“ Sport Albert byrjaði í naumu tapi í Andalúsíu Fótbolti Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Handbolti Mark undir lok leiks gefur Norðmönnum von Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 86-79| Haukar taka forystu í úrslitaeinvíginu Körfubolti Fleiri fréttir Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Chelsea meistari sjötta árið í röð Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Sjá meira