Erlent

Fimm ára stúlka týndist í feni

Samúel Karl Ólason skrifar
Stúlkan sást úr þyrlu og gat áhöfn þyrlunnar vísað lögregluþjónum til hennar.
Stúlkan sást úr þyrlu og gat áhöfn þyrlunnar vísað lögregluþjónum til hennar. AP/Fógetinn í Hillsborough-sýslu

Áhöfn leitarþyrlu notaði hitamyndavél til að finna fimm ára stúlku sem hafði týnst í fenjum Flórída. Stúlkan er einhverf og sást ganga í ökkladjúpu vatni og gat áhöfn þyrlunnar beint lögregluþjónum að henni.

Stúlkan hafði farið frá heimili hennar á mánudaginn og gengið úr í fenin. Umfangsmikil leitt hófst fljótt en lögregluþjónum hefur verið hrósað fyrir skjót viðbrögð og fyrir að hafa fundið stúlkuna tiltölulega fljótt, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar.

Margar hættur leynast í fenjum Flórída, eins og snákar og jafnvel krókódílar.

Myndband úr þyrlunni sýnir þegar áhöfnin fann stúlkuna og þá var hún þó einungis nokkrum tugum metra frá lögregluþjónum á jörðu niðri.

Stúkuna sakaði ekki, samkvæmt frétt NBC í Flórída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×