Lífið

„Mig langar að lifa lífinu til að njóta þess“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Brynjar Steinn, jafnan þekktur sem Binni Glee, ræðir á einlægan hátt um magaminnkandi aðgerð sem hann fór í, Æði þættina, félagskvíðann, fjölbreyttar hliðar fræðginnar, ástina og margt fleira í Einkalífinu.
Brynjar Steinn, jafnan þekktur sem Binni Glee, ræðir á einlægan hátt um magaminnkandi aðgerð sem hann fór í, Æði þættina, félagskvíðann, fjölbreyttar hliðar fræðginnar, ástina og margt fleira í Einkalífinu. Vísir/Vilhelm

„Þetta var það eina í stöðunni fyrir mig. Ég þekki fólk sem hefur farið í svona aðgerð sem þorir ekki að segja frá því. Það er svo hrætt um að vera dæmt,“ segir raunveruleikastjarnan Binni Glee sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu. Binni Glee fór í svokallaða míní-hjáveitu sem er magaminnkandi aðgerð og segir að lífið hafi aldrei verið betra en í dag. Hann ræðir þetta og margt annað í Einkalífinu.

Hér má sjá viðtalið við Binna í heild sinni:

Klippa: Einkalífið - Brynjar Steinn Gylfason

Varð að komast strax að í aðgerðinni

Binni segist hafa glímt við félagskvíða og ofþyngd alla sína ævi og segir aðgerðina algjörlega hafa breytt lífi sínu.

„Mini hjáveita er svona aðgerð til að minnka magann þinn. Þannig að núna borða ég minna og á auðveldara með að léttast,“ segir Binni. Í janúar 2023 urðu ákveðin vatnaskil í lífi hans þegar hann segist aldrei hafa verið þyngri.

„Mér leið sjúklega illa, mig langaði bara að deyja og ég var á botninum í lífinu. Það var svo erfitt. Svo ákvað ég bara að fara og panta tíma hjá lækni og segja bara: Ég þarf að fara í aðgerð. Ég er búinn að reyna allt og þetta hefur verið ströggl allt mitt líf.

Ég hef alltaf verið í ofþyngd og ég ólst upp við að fara í stanslausar ferðir til næringarfræðings ásamt því að fara í meðferðarmiðstöð fyrir matarfíkn.“

Margir sem þori ekki að segja frá slíkri aðgerð

Hann segist hafa verið kominn með alveg nóg eftir að hafa prófað alls kyns úrræði og vildi einfaldlega bjarga lífi sínu.

„Ég sá enga framtíð þannig að ég ákvað að panta tíma og fór bara í aðgerðina tveimur vikum síðar. Mig langaði bara að fara strax því þetta var bara svo erfitt, ég hataði bara lífið. Ég fór 13. febrúar 2023 og eftir það hefur verið svo gaman að sjá muninn á mér, hvernig ég var í fyrra og hvernig ég er í dag.“

Hann segir þetta sannarlega hafa verið stóra ákvörðun en hikaði þó ekki. Samt sem áður hafi hann ekki geta komist hjá því að hugsa um viðbrögð fólks.

„Fólk hefur alveg sterkar skoðanir á svona aðgerðum og ég sjálfur viðurkenni að ég var á móti þessu fyrst. En þetta var það eina í stöðunni, ég þurfi að gera þetta og ég sé ekki eftir því.“

Hann segir að fólk sem telji það svindl að fara í svona aðgerð átti sig ekki á því hversu mikið vinna fylgir henni. Hann hafi þurft að læra allt upp á nýtt eftir aðgerðina og það hafi ekki verið auðvelt.

„Mér finnst þetta alveg vera mjög mikið tabú. Fólk vill ekki viðurkenna að það hafi farið í svona aðgerð og ég skil það alveg. 

Ég þekki fólk sem hefur farið í svona aðgerð sem þorir ekki að segja frá því. Það er svo hrætt um að vera dæmt.“
Binni segir að umræðan um magaminnkandi aðgerðir einkennist af miklu tabú-i. Vísir/Hulda Margrét

Mikilvægt að sýna að lífið sé ekki alltaf dans á rósum

Í gegnum tíðina hefur Binni verið óhræddur við að opna á ýmsa umræðu um andlega heilsu og önnur málefni, bæði á sínum eigin miðlum og í þáttunum Æði. Þó að hann sé að segja frá aðgerðinni núna ári síðar segist hann þó alltaf hafa verið ákveðinn í því að segja frá þessu.

„Ég er bara núna að koma út með þetta en það er ekkert af því ég þorði ekki að segja frá þessu. Mig langaði bara að hafa þetta aðeins fyrir sjálfan mig fyrst og svo ætlaði ég alltaf að koma út með þetta. 

Mér finnst líka mikilvægt að tala um þetta og sýna að lífið er ekki alltaf dans á rósum.“

Aðspurður hvort hann sé alltaf óhræddur að ræða um persónuleg málefni svarar Binni:

„Ég þarf alveg oft að mana mig upp í þetta. En mér finnst alltaf mikilvægt að tala um svona hluti því ég veit að það getur hjálpað einhverjum þarna úti.“

Sem dæmi segist hann vita að hann hafi haft jákvæð áhrif með því að sýna frá hinseginleika sínum á samfélagsmiðlum í öll þessi ár.

„Til dæmis fólk að hrósa mér fyrir að þora að vera ég sjálfur, vera eins og ég er og foreldrar að þakka mér að hafa hjálpað krökkunum sínum að koma út og alls konar svona. Það er svo gaman að heyra þetta því þá líður mér eins og ég sé að gera eitthvað.“

Binni Glee segir kærkomið að vita af því að hann geti haft jákvæð áhrif. Vísir/Vilhelm

Segir of dýrt að fara til sálfræðings

Binni hefur sem áður sagt glímt við andleg veikindi á borð við kvíða síðan í æsku. Það hafi hrjáð hann mikið en hann segir mjög gott að finna að allt sé á réttri leið hjá sér.

„Andlega heilsan er ekkert fullkomin hjá mér en mér líður ótrúlega vel í dag og ég elska lífið og sjálfan mig. En ég er náttúrulega að reyna að vinna í því stöðugt. Og að sjá muninn á mér núna og fyrir ári síðan, ég er bara önnur manneskja. Ég er ekkert kominn þangað ég er enn að vinna í sjálfum mér, er enn að glíma við kvíða og stress,“ segir Binni og bætir við að hann ætli sér þó að tækla það.

„Ég held að það sem hjálpar mér sé að ég er að verða eldri og eldri. Tíminn er núna og ég veit það. Núna er tíminn til að hafa gaman og lifa lífinu í engri eftirsjá. 

Ég er búinn að lifa lífinu svo lengi við það að líða illa og ströggla við þyngdina. Mig langar að lifa lífinu til að njóta þess.“

Þegar Binni fór fyrst að verða frægur segist hann stöðugt hafa velt því fyrir sér hvað öðrum fyndist um sig og álit annarra skipti hann meira máli en í dag.

„Núna er mér meira lowkey sama. Ef einhver er að drulla yfir okkur Æði strákana í kommentum þá bara hlæjum við að því. En það koma alveg dagar þar sem ég er svona: ómægad hvað mun fólk halda eða finnast. Eins og þegar ég póstaði myndinni á Insta til að segja frá míní hjáveitunni. Þá hugsaði ég alveg úff, hvað mun fólk hugsa. 

En í lok dags þá er mér alveg sama því þetta er mitt líf.“

Í gegnum tíðina segist Binni aðallega sjálfur hafa reynt að finna út úr hlutunum.

„Ég hef aldrei farið til sálfræðings. Ég leita mikið í samfélagsmiðla og á netið og reyni að finna út úr því. 

Mig langar alveg að fara til sálfræðings en mér finnst það bara svo dýrt. Ég vil ekki fá meiri kvíða yfir því að þurfa að borga sálfræðitíma.“

Einkalífið er á Spotify. Í spilaranum hér að neðan má heyra viðtalið við Binna:


Tengdar fréttir

„Langaði ekki að lifa lengur“

Raunveruleikastjarnan Binni Glee fór í míní hjáveitu fyrir ári síðan. Hann greinir frá á Instagram og segir aðgerðina hafa bjargað lífi sínu.

Æðisleg Dorrit stal senunni í Bíó Paradís

Það var mikið um dýrðir og glæsilegheit á forsýningu fimmtu og jafntframt síðustu  þáttaröð af raunveruleikaþáttunum Æði í Bíó Paradís í gærkvöldi. Tveir fyrstu þættirnir voru frumsýndir og vöktu gríðarlega lukku meðal áhorfenda. 

Raggi Kjartans kenndi Æði strákunum gjörningalist á typpinu

„Þetta var alveg með topp þremur steiktustu mómentum lífs míns. Að vera fokking öskrandi, ber að ofan, á meðan Patti er að mála með typpinu og það er einhver fimmtugur karlmaður hoppandi á typpinu í sófanum,“ segir Bassi Maraj um upplifun sína af listgjörning með Ragga Kjartans í síðasta þætti ÆÐI.

Æði strákarnir taka upp þáttaröð fjögur á Tenerife

Patrekur Jaime, Binni Glee og Bassi Maraj eru staddir á Tenerife í augnablikinu. Þeir eru þar í samstarfi við Úrval útsýn að taka upp fjórðu þáttaröð af Æði, sem slegið hafa í gegn á Stöð 2.

Binni Glee fékk taugaáfall á Akureyri

Það var heldur betur mikið um að vera í raunveruleikaþættinum Æði á Stöð 2 í gærkvöldi en gengið skellti sér í ferð í heimabæ þeirra flestra, Akureyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×