Heilsuðust að nasistasið með lögreglu á hælunum Árni Sæberg skrifar 9. febrúar 2024 11:11 Karl Steinar lýsti því fyrir dómara í héraðsdómi í morgun hvernig félagarnir hefðu heilsast að nasistasið. Vísir/Vilhelm Karl Steinar Valsson, sem stýrði aðgerðum þegar sakborningar í hryðjuverkamálinu svokallaða voru handteknir, segir að það hefði verið ábyrgðarleysi af hálfu lögregluyfirvalda að stíga ekki inn í málið. Hann lýsti því fyrir dómi að þeir Sindri Snær og Ísidór hefðu heilsast að nasistasið þegar lögregla sá Ísidór fyrst.
Þetta kom fram í vitnisburði Karls Steinars á öðrum degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn þeim Sindra Snæ Birgissyni og Ísidór Nathanssyni, sem sæta ákæru fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í henni, auk fjölda vopnalagabrota. Karl Steinar, sem er yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra, kveðst hafa fengið veður af máli Sindra Snæs þann 21. september árið 2022. Þá hafði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fengið aðgang að síma Sindra Snæs í tengslum við handtöku vegna vopnalagabrots. Karl Steinar segir að eftir að hafa séð gögn úr síma Sindra Snæs, þar á meðal samskipti hans við Ísidór, hafi hann metið það svo að fullt tilefni væri að hefja rannsókn á þeim félögum. Sú ákvörðun hafi verið tekin í samráði við Grím Grímsson, yfirlögregluþjón miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Grímur og Karl Steinar á blaðamannafundi lögreglu vegna málsins í september 2022.Vísir/Vilhelm Heimildar dómstóla til ýmissa þvingunaraðgerða hafi verið aflað, þar á meðal skyggingar. Staðsetningarbúnaði hefi verið komið fyrir undir bíl Sindra Snæs og hann eltur um höfuðborgarsvæðið. Á þeim tíma hafi lögreglunni ekki tekist að staðsetja Ísidór og ekki vitað hvar hann væri til heimilis. Óku eins og þeir hafi vitað af lögreglunni Leið Sindra hafi legið út á Álftanes í Garðabæ þar sem hann stöðvaði bílinn utan við íbúðarhús. Hann hafi stigið út úr bílnum og Ísidór hafi komið út úr húsinu. Þeir hafi heilsast að nasistasið, sem felst í því að lyfta beinum hægri handlegg upp á ská, og sest saman inn í bíl. Þeir hafi að því búnu ekið af stað og lögregla í humátt eftir. Lögregla hafi beitt svokallaðri mjúkri skyggingu, það er að segja frekar reitt sig á staðsetningarbúnað en að elta bílinn. Karl Steinar segir að á meðan þeim Sindra Snæ og Ísidór var fylgt hafi þeir farið „þekktar slaufur“, inn einstefnugötur og því um líkt, eins og þá grunaði að einhver væri á hælunum á þeim. Sindri Snær, lengst til vinstri, heilsaði Ísidóri að nasistasið þegar lögregla sá þá fyrst saman. Í miðjunni er Einar Oddur Sigðurðsson, verjandi Ísidórs.Vísir/Árni Þá hafi þeir staðnæmst við verslun í Kópavogi og Ísidór fengið símtal þess efnis að líklegt væri að þeim væri fylgt. Á sama tíma hafi lögregla komist yfir meira og meira efni úr síma Sindra Snæs, þar á meðal myndir af vopnum. Þá hafi Karl Steinar ákveðið að tilefni væri til að hætta skyggingu, hefja formlega rannsókn og handtaka þá Sindra Snæ og Ísidór. Enn á því að rétt hafi verið að stíga inn í Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, spurði Karl Steinar út í yfirlýsingu lögreglunnar, á blaðamannafundi daginn sem handtökurnar fóru fram, þess efnis að þjóðinni hefði verið bjargað frá hryðjuverkum. Sveinn Andri vildi til að mynda vita hvort lögregla hafi vitað á þeim tíma hvers konar hryðjuverkaógn hafi vofað yfir. Karl Steinar segir að ýmislegt hafi fundist á síma Sindra Snæs, til að mynda samskipti við Ísidór um að þeir hafi viljað fólki mein, Hinsegin daga og ætluð hryðjuverk þar. „Ég er enn á þeirri skoðun að það hafi verið rétt að stíga inn í,“ segir Karl Steinar. Sveini Andra lék forvitni á að vita hvers vegna lögregla hafi skyndilega ákveðið að hætta að skyggja Sindra Snæ og Ísidór og ráðist í handtökur. Sveinn Andri og Sindri Snær fengu sér kaffibolla áður en aðalmeðferð hófst í gær.Vísir/Árni Karl Steinar segir að það hafi fyrst og fremst verið rannsóknarhagsmunir sem voru undir. Þá sé aldrei gefinn afsláttur af öryggi borgara. Lögregla hafi verið að reyna að finna vopnin og talið ríka ástæðu til þess. „Það var full ástæða til þess að stöðva þá og fara í samtal við þessa menn.“ Þá segir Karl Steinar það alls ekki óalgengt að lögregla fylgist með mönnum um tíma en breyti svo um fasa og handtaki menn. Auk þess hafi lögregla talið að Sindri Snær og Ísidór hafi vitað að lögregla væri að fylgjast með þeim. „Við erum á þessum tíma að reyna að átta okkur á því hverju við stöndum frammi fyrir.“ „Sjokkeraður“ Loks spurði Sveinn Andri hvort lögregla hefði mögulega oftúlkað þá ógn sem talin var stafa af þeim Sindra Snæ og Ísidór. Karl Steinar segist ekki geta sagt til um það. „Ég var mjög sjokkeraður þegar ég sá þau samskipti sem komu fram. Þau höfðu þau áhrif að við gátum ekki sleppt því að stíga inn í. Það hefði verið ábyrgðarleysi.“ Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs.Vísir/Vilhelm Loks spurði Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs, út í það að mönnunum tveimur hafi verið lýst sem vopnuðum og hættulegum á blaðamannafundinum eftirminnilega og í fréttatilkynningu. Karl Steinar segir að hvorugur þeirra hafi verið vopnaður þegar þeir voru handteknir. Hann kveðst ekki klár á því af hverju fréttatilkynningin er orðuð með þeim hætti að tveir handteknu hafi verið vopnaðir og hættulegir. „Það er hugsanlegt að það hafi verið ónákvæmt orðalag.“
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Reykjavík Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira