Loksins rafmagns sportjeppi frá Porsche Bílabúð Benna 25. desember 2023 11:01 Nýr Macan verður stærri en eldri bíll (bíl á mynd hefur verið breytt svo að endanleg hönnun sjáist ekki) Á nýju ári verða 10 ár liðin frá því Porsche Macan kom á markað. Porsche Macan er án efa mikilvægasti hlekkurinn í sterkri keðju Porsche bíla en til að mynda tók hann aðeins þrjú ár að verða söluhæsti bíll merkisins.
Á tíu ára afmælinu mun Porsche fagna þeim áfanga með nýjum, alrafmögnuðum Macan sem setur ný viðmið á markaði sportlegra rafjeppa. Margir fögnuðu þegar Porsche kynnti Taycan, hreinræktaðan rafmagns sport bíl, sem fyrsta rafmagnsbíl sinn, en þó er ljóst að mun fleiri hafa beðið eftir fyrsta rafmagns sportjeppanum enda eru Íslendingar fyrir löngu síðan orðnir einhver mesta jeppaþjóð heims. Vaðgeta og torfærueiginleikar Macan verða einstaklega góðir. Rafmagnaður Macan mun vera kynntur hér á landi með vorinu og kosta frá 13,5 milljónum hérlendis miðað við núverandi skattaumhverfi. Hjá Porsche var lagt upp með að nýr Macan EV yrði sportlegasti rafjeppinn í þessum flokki en þar byggir hann á reynslu Porsche sem hefur í yfir 75 ár framleitt marga af merkilegustu sportbílum sögunnar. Flestir kannast eflaust við Porsche Taycan en hann var sannkölluð bylting á rafbílamarkaðinum þar sem hann kynnti til sögunar 800v rafkerfi og einstaklega hraðvirka hleðslugetu sem skilaði jafnvel 100 km drægni á fimm mínútum. Þannig sannaði Porsche að það væri ekkert mál að ferðast langar vegalengdir á rafbílum en sannaði jafnframt að ekki er nauðsynlegt að vera með allt of stórar og þungar rafhlöður, ef að hleðslugetan er nægilega góð. Porsche hefur þegar sett yfir 100.000 Taycan rafbíla á markað en miklar væntingar eru til hins nýja rafbíls sem koma mun sterkur inn á markað þar sem mikil samkeppni ríkir. Ný innrétting byggir á innréttingu Taycan en er þó orðin jafnvel nútímalegri. En hvað er nýtt í Porsche Macan EV? Um stærri bíl er að ræða en í fyrri kynslóðum með 2.900 mm hjólhaf. Undirvagninn verður með nýrri 100 kWst rafhlöðu sem er skipt í 12 hólf sem hægt er að skipta út hverju fyrir sig. Hlutföll nikkels, kóbalts og mangan eru 8:1:1 sem ætti að tryggja allt að 30% meiri hleðslugetu en í Porsche Taycan. Uppbygging rafhlöðunnar er byltingarkennd en til að mynda er hún tvískipt þannig að hægt verður að hlaða hana með fullri getu hvort sem að hleðslan er 400 eða 800 volt. Er það gert með því að skipta 800 volta rafhlöðunni í tvennt sem hægt er að hlaða á 150 kW samhliða, en á 800 voltum er hægt að hlaða á allt að 270 kW. Öflugri útgáfa bílsins verður 640 hestöfl og með 1.000 Nm togi gegnum tvo rafmótora. Áætluð drægni er upp í um 621 km en nánari upplýsingar um það fást þegar bíllinn verður endanlega kynntur í janúar. Í fyrsta skiptið verður notast við sílikon-karbíð í straumbreytirinn fyrir afturdrifið sem á að auka viðbragðsgetu bílsins en hann verður aðeins 3,3 sekúndur í hundraðið í aflmestu útgáfu. Ný tækni tryggir bestu mögulegu aksturseiginleika og hleðslugetu. Fjöðrunin verður tvöföld klafafjöðrun að framan og fjölliða að aftan með möguleika á PASM uppfærslu og loftpúðafjöðrun. Innandyra verða tveir 10,9 skjáir fyrir afþreyingu en bílstjóri getur notið 12,6 tommu skjá. Einnig verður hægt að panta bílinn með stórum framrúðuskjá sem notast við „artifical reality“ sem er sambærilegur við að horfa á 87 tommu skjá á veginum fyrir framan ökumanninn. Farþegi í framsæti getur einnig fengið 10.9 tommu skjá fyrir framan sig þar sem hægt er að horfa á afþreyingarefni frá streymisveitum. Bíllinn kemur með nýju talkerfi sem á auðveldara með að skilja skipanir auk þess að vera hraðvirkara. Android Auto og Apple CarPlay verður staðalbúnaður og verður landakortum í leiðsögukerfinu varpað upp á skjáinn fyrir framan ökumann. Macan býr yfir afar sportlegum eiginleikum en er þó einnig hinn fullkomni fjölskyldubíll með nægu plássi fyrir alla fjölskylduna. Bílabúð Benna, umboðsaðili Porsche á Íslandi, býður viðskiptavinum sínum upp á að forpanta bíllinn en áætlað er að bíllinn verði kynntur hérlendis með vorinu og að fyrstu eintök hans verði afhent snemma í sumar en ljóst er að langir biðlistar muni myndast þar sem margir hafi beðið eftir þessari blöndu Porsche rafmagns sportjeppa.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Sjá meira