Lífið

Öllu til tjaldað í steypiboði Birgittu Lífar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Öllu var tjaldað til þegar Birgitta Líf og Enok Jónsson fögnuðu komu barnsins síns.
Öllu var tjaldað til þegar Birgitta Líf og Enok Jónsson fögnuðu komu barnsins síns. Instagram

Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson héldu í gær steypiboð eða það sem kallað er á ensku „baby shower“ og var öllu tjaldað til. Parið greindi frá því að þau ættu von á barni í ágúst.

Birgitta Líf er markaðsstjóri World Class og byrjaði parið að rugla reitum saman í ársbyrjun 2022.

Boðið var upp á dýrt kampavín þó tilvonandi móðirin mætti ekki fá sér.Instagram

Það vakti mikla athygli í september síðastliðinn þegar tilkynnt var um kyn barnsins mep hjálp þyrlu sem dreifði bláum reyk úr lofti yfir heimili þeirra í Skuggahverfinu. Samkvæmt bláa litnum mátti leiða líkur að því að þau ættu von á dreng.

Gestir spreyttu sig á að spá fyrir ýmsum eiginleikum barnsins.Instagram

Af því sem sjá má af myndum af viðburðinum sem birtar voru á Instagram var boðið upp dýrindis veitingar. Tertur og fínt kampavín voru á boðstólum og gestir komu með gjafir handa barninu ófædda.

Einnig voru miðar þar sem gestir gátu giskað á nafn barnsins, hvenær það kæmi í heiminn, augnlit, hárlit og fleira.

Það hefur vakið athygli undanfarin ár að getnaður og öll þau nær endalausu veisluhöld sem haldin eru í kringum fæðingu séu gríðarlega kostnaðarsöm fyrir vini og ættingja. Ofan á hina hefðbundnu sængur- og skírnargjöf tíðkist nú sums staðar að gefa gjafir í kynjaveislum og steypiboðum, innfluttum bandarískum hefðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×