Neytendur

Banna Arnar­laxi að notast við „sjálf­bærni“ í markaðs­setningu

Atli Ísleifsson skrifar
Það var niðurstaða Neytendastofu að notkunin á hugtökunum væri almenn, óljós og villandi og ekki studd nægilegum gögnum.
Það var niðurstaða Neytendastofu að notkunin á hugtökunum væri almenn, óljós og villandi og ekki studd nægilegum gögnum. Vísir/Vilhelm

Neytendastofa hefur bannað Arnarlaxi að notast fullyrðingar um sjálfbærni í markaðssetningu og vörumerkjum félagsins. Fullyrðingarnar séu taldar villandi fyrir neytendur.

Þetta kemur fram í úrskurði Neytendastofu sem tók til skoðunar fullyrðingar Arnarlax um sjálfbærni, umhverfisvæna framleiðslu og fleira sem meðal annars birtust á vefsíðu félagsins og í öðru auglýsinga- og kynningarefni. Var það niðurstaða stofnunarinnar að notkunin á hugtökunum væri almenn, óljós og villandi og ekki studd nægilegum gögnum.

Fram kemur að í svörum félagsins hafi komið fram að félagið starfi á grundvelli starfs- og rekstrarleyfa frá Umhverfis- og Matvælastofnun sem veitt séu samkvæmt lögum. Þá vísaði félagið til þess að starfsemi félagsins væri vottuð alþjóðlegu vottunarkerfi, ASC, sem taki bæði til umhverfis- og samfélagslegra þátta.

Neytendastofa taldi að eftirfarandi fullyrðingar, meðal annars á heimasíðu Arnarlax, þörfnuðust nánari skýringa og sannanna:

  • „Sustainability it´s in our nature.“
  • „Sustainable salmon farming at Arnarlax takes place on the fish´s terms.“
  • „Arnarlax ensures the quality of its salmon by striving to support fish health and reduce environmental impact with innovative aquaculture.“
  • „It is important to us that our fish feed have the correct balance of nutritional content, consistency and taste, as well as being gentle on the environment.“
  • „For example, in the winter we use a special blend of feed and require our feed suppliers to ensure that the ingredients they use are sustainability certified.“
  • „All Arnarlax farming activity has been through an environmental assessment process.“

„Þá hélt félagið því fram að fullyrðingar þess byggist á gögnum og faglegum niðurstöðum óháðra aðila, leyfisveitenda og eftirlitsstjórnvalda. Enn fremur sé það mat félagsins að Neytendastofa hafi ekki heimildir til að krefjast þess að það færi fram sérstaka sönnun fyrir eða afstöðu til þeirra orða sem fram komi í orðhluta vörumerkja félagsins,“ segir í úrskurðinum.

Notkunin almennt óljós og ekki studd gögnum

Í niðurstöðu Neytendastofu kom fram að það væri álit stofnunarinnar að notkun Arnarlax á hugtökunum sjálfbær og sjálfbærni væri almenn og óljós og ekki studd nægilegum gögnum. 

„Markaðssetningin gefi þannig hinum almenna neytanda ranglega til kynna að laxeldi félagsins í sjókvíum væri að fullu sjálfbært og hafi þannig engin eða í það minnsta hlutlaus áhrif á umhverfið. Að mati Neytendastofu beri að líta til þess að notkun Arnarlax á fullyrðingum sem innihalda hugtökin sjálfbær og sjálfbærni sé nokkuð víðtæk og áberandi. Notkunin væri tengd við orð- og myndmerki félagsins sem komi fram á vefsíðu félagsins, í blaðaauglýsingum og öðru markaðs- og kynningarefni.

Að því virtu var það álit Neytendastofu að notkun og framsetning þeirra fullyrðinga og orð- og myndmerkja sem um ræddi væri almenn og óljós og væri því villandi og óréttmæt gagnvart neytendum.

Neytendastofa bannaði því Arnarlaxi notkun framangreindra fullyrðinga og vörumerkja í markaðs- og kynningarefni félagsins þannig að villandi sé fyrir neytendur,“ segir á vef Neytendastofu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×