Lífið

Elliði Snær og Sóldís Eva eignuðust stúlku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Elliði og Sóldís eignuðust stúlku 5. desember síðastliðinn.
Elliði og Sóldís eignuðust stúlku 5. desember síðastliðinn. Skjáskot/Sóldís Eva

Handbolta-og landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson og Sóldís Eva Gylfadóttir styrktarþjálfari eignuðust frumburð sinn 5. desember síðastliðinn. Parið deildi gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

„Elliðadóttir mætti í heiminn þann 5.12.2023. Við gætum ekki verið ánægðari þessa fullkomnu draumadís,“ skrifaði parið og deildi myndum af stúlkunni.

Elliði og Sóldís eru bæði frá Vestmannaeyjum en eru búsett í Þýskalandi þar sem Elliði er á samningi hjá Gummersbach sem spilar í þýsku úrvalsdeildinni. Elliði kom til liðsins árið 2020 þegar Guðjón Valur Sigurðsson tók við þjálfun lðisins og fór liðið upp í efstu deild síðastliðið vor.

Elliði er orðinn fastamaður í íslenska landsliðinu í handbolta og sló í gegn á heimsmeistaramótinu í janúar.


Tengdar fréttir

Elliði Snær raðaði inn mörkum en horna­mennirnir horn­reka

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann tvo sigra á Færeyjum um helgina en þetta voru fyrstu landsleikirnir í sex mánuði og þeir fyrstu síðan að Snorri Steinn Guðjónsson tók við liðinu. Tölfræði liðsins frá helginni er athyglisverð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×