Lífið samstarf

Jóla­gjöfin í ár er gjafa­bréf á förðunar­nám­skeið

Elira

Ertu í vandræðum með að velja jólagjöf sem hentar? Við í Eliru Beauty erum með einstakt úrval af fallegum og góðum snyrtivörum sem henta vel fyrir allan aldur.

Vörurnar sem verslunin hefur upp á að bjóða eru í hæsta gæðaflokki og eru einstaklega góðar fyrir okkur og fyrir umhverfið. Hjá okkur getur þú fengið fagaðila til að aðstoða þig við að velja réttu gjöfina.

Jólagjöfin í ár er gjafabréf á förðunarnámskeið

Förðunarnámskeið okkar í Eliru hefur slegið í gegn og og er tilvalið að gefa gjafabréf á námskeiðið í jólagjöf.

Á námskeiðinu er farið yfir grunnatriði í húðumhirðu og förðun. Þú lærir að farða þitt andlit, dagförðun og/eða kvöldförðun ásamt því að læra hvernig er best að nota helstu förðunarvörur. Hægt er að velja á milli þess að koma á einstaklingsnámskeið eða tvö saman

Þetta er frábært námskeið fyrir byrjendur eða góð leið fyrir lengra komna til að bæta við kunnáttuna.

Einstakt úrval af fallegum gjafaöskjum

Hjá Eliru er að finna gott úrval af gjafaöskjum sem eru fallegar gjafir. Gefðu til dæmis fallega brúnku í jólapakkann og nældu þér í fallega Marc Inbane gjafaöskju.

Sweed gjafaöskjurnar hafa einnig verið einstaklega vinsælar. Gefðu aungháraserum án allra aukaefna og góðan maskara í gjöf.

Fyrir þau sem elska að hugsa vel um húðina eða njóta þess að dekra við líkama og sál eru fallegu gjafaöskjurnar frá Comfort Zone eða lífrænu snyrtivörurnar frá Evolve frábærar undir tréð.

Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta mikilvæg

Snyrtivöruverslunin Elira hefur verið starfrækt í rúm tvö ár og leggur áherslu á ráðgjöf og góða þjónustu. „Úrvalið af húð- og snyrtivörum er mikið í dag og aðgengi að allskonar upplýsingum ótæmandi. Því er mikilvægt að geta fengið faglega ráðgjöf um innihald og rétta notkun húð- og förðunarvara. Hér í Eliru vinna eingöngu lærðir snyrtifræðingar og förðunarfræðingar og við bjóðum einungis upp á hágæða snyrtivörur og förðunarvörur ásamt persónulegri þjónustu,“ segir Rakel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×