Innlent

Víð­áttu­mikil og öflug hæð yfir Græn­landi stýrir veðrinu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Skarfar á skeri við Sundahörn fyrr í haust.
Skarfar á skeri við Sundahörn fyrr í haust. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil og öflug hæð yfir Grænlandi stýrir veðrinu um helgina, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Hæðin mun beina hingað til lands svölum norðan-og norðaustanáttum. Él verður víða á Norður-og Austurlandi en lengst af verður bjartviðri fyrir sunnan og vestan.

Að sögn veðurfræðings eru líkur á að lægðardrag myndist við suðurströndina á sunnudagsmorgun. Þá gæti snjóað um tíma á Suðurlandi og jafnvel við Faxaflóa seinnipartinn. Frost víða 0 til 5 stig en sums staðar frostlaust við sjávarsíðuna.

Í dag er norðlæg átt, 5-13 metrar á sekúndu og él norðan og austan lands. Annars bjart með köflum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:

Norðan og norðaustan 3-10 m/s og skýjað með köflum, en dálítil él á Norður- og Austurlandi. Frost 0 til 10 stig, minnst syðst.

Á sunnudag:

Norðaustlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, hvassast norðvestantil og él á víð og dreif, en úrkomulítið á Vesturlandi. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:

Útlit fyrir austlægar eða breytilegar áttir með éljum eða jafnvel snjókomu víða um land. Áfram kalt í veðri.

Á fimmtudag:

Líkur á vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu á sunnanverðu landinu, en úrkomulítið fyrir norðan. Hlýnandi veður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×