Sport

Dag­skráin í dag: Ítalski boltinn og NFL í aðal­hlut­verki

Smári Jökull Jónsson skrifar
Brock Purdy er leikstjórnandi San Fransisco 49´ers sem mæta Jacksonville Jaguars í kvöld.
Brock Purdy er leikstjórnandi San Fransisco 49´ers sem mæta Jacksonville Jaguars í kvöld. Vísir/Getty

Það er nóg um að vera á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag líkt og flesta sunnudaga. Fimm leikir í Serie A verða í beinni og þar á meðal Rómarslagur Lazio og Roma.

Stöð 2 Sport

Leikur KR og Ármanns í 1. deild kvennna í körfuknattleik verður sýndur í beinni útsendingu klukkan 17:50.

Stöð 2 Sport 2

Ítalíumeistarar Napoli taka á móti Empoli á heimavelli sínum og hefst útsending klukkan 11:20. Klukkan 13:50 verður leikur Fiorentina og Bologna í Serie A sýndur beint.

Klukkan 17:50 fer NFL-deildin síðan af stað og verður leikur Jacksonville Jaguars og San Fransisco 49´ers sýndur klukkan 17:55. Seinni leikur kvöldsins hefst 21:20 en þá mætast lið Los Angeles Chargers og Detroit Lions.

Stöð 2 Sport 3

Udinese og Atalanta mætast í Serie A klukkan 13:50. NFL-Red Zone fer í loftið klukkan 17:45 en þar verður sýnt frá öllum leikjum dagsins í NFL-deildinni og skipt á milli valla.

Stöð 2 Sport 4

Nágrannaslagur Lazio og Roma verður í beinni útsendingu frá klukkan 16:50. Jose Mourinho mætir þá í heimsókn til lærisveina Maurizio Sarri og má búast við látum.

Stöð 2 Sport 5

NBA-deildin er komin á fullt og klukkan 20:30 verður bein útsending frá leik LA Clippers og Memphis Grizzlies.

Stöð 2 Esport

Golf tekur yfir Stöð 2 Esport fyrri hluta dagsins þegar sýnt verður frá LPGA-mótaröðinni frá klukkan 18:00.

Klukkan 20:00 fer Game Tíví síðan í loftið þar sem farið verður yfir allt það helsta í tölvuleikjaheiminum.

Vodafone Sport

NHL On The Fly verður sýnt klukkan 10:00 og 12:25 er komið að  beinni útsendingu frá leik Tottenham og Liverpool í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. 

Feyenoord og AZ Alkmaar mætast í hollenska boltanum klukkan 15:40 og verður sá leikur sýndur beint. Annar dagur Grand Slam mótsins í pílukasti verður síðan í beinni frá klukkan 19:00.

Að lokum verður síðan sýnt beint frá viðureign Minnesota Wild og Dallas Stars í NHL-deildinni. Leikurinn hefst klukkan 23:05.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×